Körfubolti

Hann tók Þórshamarinn upp | Tröllatroðsla hjá Usher

Í stöðunni 22-24 í leik Keflavíkur og Hauka í gær bauð Keflvíkingurinn Davon Usher upp á rosalega troðslu.

„Hann tók Þórshamarinn upp og negldi því niður. Til þess eru hamrar. Það á að nota þá. Þetta er vítamíntroð," sagði Svali Björgvinsson á sinn einstaka hátt.

Troðslan kveiki í Keflavík sem tók í kjölfarið frumkvæðið í leiknum. Það dugði þó ekki til því Haukar áttu endurkomu undir lokin og tryggðu sér sigur sem og oddaleik í rimmunni.

Troðsluna má sjá í spilaranum hér að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×