Innlent

Fréttaflutningur forseta Íslands veldur usla

Jakob Bjarnar skrifar
Óljós fréttaflutningur forsetans um hugsanlegar peningagjafir frá Sádi Arabíu hafa valdið verulegum usla, og jafnvel óeiningu.
Óljós fréttaflutningur forsetans um hugsanlegar peningagjafir frá Sádi Arabíu hafa valdið verulegum usla, og jafnvel óeiningu.
Sverrir Agnarsson Formaður Félags múslíma á Íslandi hefur séð sig knúinn til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að hvorki honum né stjórn félagsins hafi borist tilkynning um fjárstyrki frá Sádi Arabíu. Hann segist í raun ekkert vita um málið umfram það sem þegar hefur komið fram í fjölmiðlum. Þá telur Sverrir ástæðu til að taka fram að hann einn tali fyrir hönd félagsins.

„Í ljósi yfirlýsingar frá skrifstofu Forseta Íslands í gær um gjöf til Félags múslíma á Ísland frá Saudi Arabíu vill undirritaður taka fram að hann er bæði formaður og forstöðumaður félagsins og að í félaginu er enginn annar leiðtogi né talsmaður,“ segir í yfirlýsingunni.

Síðdegis í gær barst frétt frá forsetaskrifstofunni þar sem sagði meðal annars: „Þá greindi sendiherrann frá því að Sádi Arabía styddi byggingu væntanlegrar mosku í Reykjavík, myndi leggja fram rúmlega eina milljón Bandaríkjadala til byggingar hennar og að hann hefði í gær skoðað lóðina þar sem moskan myndi rísa.“

Flestar fréttastofur landsins voru í gær og í gærkvöldi að reyna að fá ítarlegri skýringar á þessum óljósa fréttaflutningi forsetans, en ekki hefur tekist að skýra þetta svo miklu nemi; þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Vísir fjallaði ítarlega um málið og greindi meðal annars frá því að Menningarsetur múslima á Íslandi kannast ekkert við málið. „Þessi peningur er ekki ætlaður okkur,“ sagði Ahmad Seddeq trúarleiðtogi Menningarseturs múslima á Íslandi. Rætt var við Sverri sjálfan sem hafði ekki heyrt frá sendiráði Sádi Arabíu varðandi þennan styrk. Hann gerði ráð fyrir því að forsetinn sjálfur hafi farið með nýjan sendiherra til að skoða lóðina í Sogamýri þar sem fyrirhuguð moska á að rísa. Einnig var rætt við Salmann Tamimi, varaformann félagsins, sem fór mikinn og sagði að Félagið myndi aldrei þiggja fé frá Sádí Arabíu. Líkast til er það til þeirra orða sem vísað er þegar segir í tilkynningu Sverris: „Þangað til tilkynning berst varðandi þennan styrk vill ég undirritaður ekki gefa neinar yfirlýsingar og allar yfirlýsingar frá einstökum meðlimum félagsins geta eingöngu lýst þeirra persónulegu skoðunum.“

Vísir hefur haft þetta mál til skoðunar í vikunni. Rætt hefur verið við Urði Gunnarsdóttur hjá utanríkisráðuneytinu en hún segir að ráðuneytið hafi enga milligöngu þá er varðar þær styrkveitingar sem forsetinn greinir frá. Vísi var kunnugt um að nýr sendiherra Sádi Arabíu, sem staðsettur er í Stokkhólmi, væri væntanlegur til að afhenda erindisbréf sitt en hjá forsetaskrifstofu fengust þær upplýsingar að þeir vildu segja frá slíkum komum sjálfir, eftir að þær hafa átt sér stað. Þá sendi Vísir á þriðjudag fyrirspurn til sendiráðs Sádí Arabíu í Stokkhólmi, sem snéri að fjárstuðningi við íslensk félög, en ekkert svar hefur enn borist.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri virðist ekki vita neitt um málið, hann geldur varhug við peningagjöfum sem slíkum og hyggst hann setja mannréttindaráð borgarinnar í að rannsaka hvernig í þessu liggur.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×