Innlent

Þriðji hver krakki í Stykkishólmi liggur í flensu

Jakob Bjarnar skrifar
Flensan er að ná hámarki og íbúar Stykkishólms hafa ekki farið varhluta af veikindunum.
Flensan er að ná hámarki og íbúar Stykkishólms hafa ekki farið varhluta af veikindunum.
Flensa herjar nú á landsmenn og virðist vera að ná hámarki. Gunnar Svanlaugsson er skólastjóri grunnskólans í Stykkishólmi og nemendur hans hafa ekki farið varhluta af veikindunum. Einn þriðji nemenda í Grunnskóla Stykkishólms liggur nú í flensu, sem vissulega setur sitt mark á starf skólans.

Heilbrigðisráðherra hefur velt upp þeim möguleika að skylda beri börn til bólusetningar. Er þetta eitthvað sem komið hefur til tals innan vébanda gunnskólans í Stykkishólmi?

„Það hefur bara verið rætt en ekki með formlegum hætti hvort sprauta beri nemendur. Við erum náttúrlega með starfandi skólahjúkrunarkonu sem heldur utan um þessi verkefni öll. Við eldri, okkur stendur til boða bólusetning, en þetta hefur líka lagt fullorðna fólkið. En, eins og staðan er núna eru 45 til 50 manns heima.“

Ekki hefur komið til þess að fella hafi þurft niður kennslu. „Neinei, þetta leggst nokkuð jafnt á aldurhópana. Reyndar hefur, eins og í síðustu viku, þyngst á yngstu krökkunum. Af 24 nemendum í 1. bekk, til dæmis, þá voru 8 eða 9 nemendur mættir. En, við fellum ekkert úr. Við kennum á fullu. Að sjálfsögðu,“ segir Gunnar skólastjóri á Stykkishólmi. Miðannarpróf standa núna yfir og ljóst að annað námsmat þarf að liggja til grundvallar og sjúkrapróf blasa við eldri nemendum.

Landlæknir hefur látið í ljós áhyggjur hversu mjög fjölgar í hópi þeirra sem ekki eru bólusettir. Í vikunni var birt svar Kristjáns Þórs Júlíussonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn á Alþingi þar sem fram kemur að á bilinu fimm til tólf prósent barna hér á landi eru ekki bólusett. Ráðherrann segir að vel sé fylgst með þróun mála.


Tengdar fréttir

Tólf prósent barna óbólusett: „Þetta er bara fákunnátta“

Barnalæknir sem upplifði mislingafaraldur hér á landi á áttunda áratugnum segir áhyggjuefni að allt að tólf prósent foreldra bólusetji ekki börn sín. Hann segir fákunnáttu foreldra um að kenna þar sem þeir þekki ekki sjúkdómana og áhrif þeirra.

Vill ekki bólusetja börnin sín

Þriggja barna móðir segist telja betra að sneiða hjá bólusetningum og miðar við slæma reynslu sína af þeim. Foreldrum hér á landi sem vilja hafna bólusetningum fyrir börn sín fjölgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×