Körfubolti

Fyrsti útsigur Hauka síðan í byrjun desember - fóru illa með Þór í seinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Emil Barja var frábær í kvöld.
Emil Barja var frábær í kvöld. Vísir/Vilhelm
Haukaliðið endar nú langa bið leik eftir leik í Dominos-deildinni. Á mánudagskvöldið unnu þeir sinn fyrsta deildarleik síðan 12. desember og í kvöld unnu þeir sinn fyrsta útisigur síðan 4. desember.

Haukarnir fóru þá í Þorlákshöfn og unnu sannfærandi 28 stiga sigur á heimamönnum í Þór í lokaleik 17. umferðar, 99-71, en sigurinn skilaði liðinu upp um fjögur sæti og alla leið í fimmta sætið.

Haukar voru tveimur stigum undir í hálfleik en unnu seinni hálfleikinn með 30 stigum og fögnuðu öruggum en jafnframt langþráðum sigri. Haukaliðið vann lokaleikhlutann 30-8.

Emil Barja átti annan leikinn í röð sinn besta leik í stigum í vetur og endaði leikinn með 28 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar. Alex Francis var með 25 stig, 14 fráköst og 6 stoðsendingar og Haukur Óskarsson skoraði 19 stig, tók 6 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.

Darrin Govens var atkvæðamestur hjá Þórsliðinu með 22 stig, 13 fráköst og 7 stoðsendingar en Grétar Ingi Erlendsson var með 17 stig og 9 fráköst.

Haukarnir byrjuðu leikinn vel og voru komnir í 9-2 eftir tæpar tvær mínútur. Þórsarar skoruðu þá sjö stig í röð og voru síðan komnir í 17-13 um miðjan leikhlutann.

Þórsarar unnu fyrsta leikhlutann 26-23 og voru mest sjö stigum yfir í öðrum leikhlutanum, 32-25. Þá komu níu stig Hauka í röð og sá góði kafli kom þeim aftur yfir í leiknum.

Haukarnir voru 42-37 yfir þegar tvær og hálf mínúta var eftir af hálfleiknum en þá kom enn ein sveiflan í leikinn þar sem Þórsliðið vann lokakafla hálfleiksins 11-4 og var í kjölfarið tveimur stigum yfir í hálfleik, 48-46.

Haukaliðið skoraði ellefu af fyrstu þrettán stigum seinni hálfleiksins og Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs, neyddist til að taka leikhlé eftir tæpar fjórar mínútur þegar Haukarnir voru komnir í 59-52.

Haukarnir voru hinsvegar komnir í gírinn og náðu mest fimmtán stiga forystu, 67-52, þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir að þriðja leikhlutanum. Þórsliðið gafst þó ekki upp og náði góðum 11-2 spretti í lok leikhlutans sem hélt liðinu inn í leiknum.

Haukaliðið vann þriðja leikhlutann á endanum 23-15 sem skilaði liðinu sex stiga forskoti fyrir lokaleikhlutann, 69-63.

Haukarnir skoruðu fjögur fyrstu stig lokaleikhlutann og voru aftur komnir tíu stigum yfir. Þeir unnu síðan fyrstu fimm mínútur fjórða leikhlutans 13-3 og voru með leikinn í öruggum höndum eftir það. Haukaliðið vann fjórða leikhlutann á endanum 30-8 og þar með leikinn með 28 stigum.



Þór Þ.-Haukar 71-99 (26-23, 22-23, 15-23, 8-30)

Þór Þ.: Darrin Govens 22/13 fráköst/7 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 17/9 fráköst, Nemanja Sovic 10/5 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 10/5 fráköst, Baldur Þór Ragnarsson 9, Emil Karel Einarsson 3/4 fráköst.

Haukar: Emil Barja 28/6 fráköst, Alex Francis 25/14 fráköst/6 stoðsendingar, Haukur Óskarsson 19/6 fráköst/5 stoðsendingar, Kári Jónsson 12/6 fráköst/6 stolnir, Kristinn Marinósson 9/11 fráköst, Hjálmar Stefánsson 4/4 fráköst, Helgi Björn Einarsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×