Jól

Fékk vitringa að gjöf í erfiðum veikindum

Elín Albertsdóttir skrifar
Þóra Hrönn segir að vitringarnir séu henni kærir og hún setur þá alltaf upp fyrir jólin.
Þóra Hrönn segir að vitringarnir séu henni kærir og hún setur þá alltaf upp fyrir jólin. Vísir/Valli
Þóra Hrönn Njálsdóttir á eftirlætishluti þegar kemur að jólum. Það eru þrír vitringar sem tengdamóðir hennar, Bára Sigurjónsdóttir, færði henni árið 1987.

Þóra Hrönn segir að vitringarnir þrír séu henni sérstaklega kærir.

„Tengdamóðir mín átti svona vitringa og hafði átt í mörg ár. Mér fannst þeir alltaf sérstaklega fallegir. Þeir voru til þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir 42 árum. Það var Helga Björnsdóttir, eiginkona Gísla á Grund, sem hafði gert þá fyrir hana. Ég veiktist af krabbameini í eitlum árið 1987 og var í erfiðri lyfjameðferð fyrir jólin þegar Bára kom með vitringa að gjöf handa mér. Þeir voru fallega pakkaðir inn í servíettur og lágu í brúnum kassa. Hún vildi gleðja mig og bað Helgu að gera fyrir sig nýja vitringa,“ segir Þóra Hrönn.

Handgerðir vitringar með gull, reykelsi og myrru. Það var Helga á Grund sem föndraði þá árið 1987.
„Helga bjó til alveg sérstaklega fallegt jólaskraut. Hún vann með Kvenfélagi Hringsins og konurnar þar seldu fallega hluti. Mér þykir alltaf vænt um vitringana mína og þegar ég setti þá upp núna fyrir ljósmyndarann fannst mér jólin vera komin,“ segir Þóra Hrönn, sem hefur verið að læra ljósmyndun og er með heimasíðuna thorahronn.com.

Helga á Grund var sögð listræn, sannkölluð töframanneskja í höndunum en hún skreytti yfirleitt elli- og hjúkrunarheimilið fyrir hátíðir á smekklegan hátt. Helga lést árið 1999.

„Ég gef vitringunum alltaf virðulegan sess í stofunni. Bára lét sína standa uppi á hvítum flygli. Vitringarnir skipta miklu máli í Biblíunni en þeir heita Kaspar, Melkíor og Baltasar. Börnin mín hafa alist upp með vitringunum, þeir eru partur af jólahaldinu hjá okkur,“ segir Þóra Hrönn sem segist hafa fækkað jólaskrauti síðustu ár.

„Vitringarnir fara þó alltaf upp.“






×