Leikjavísir

Skemmtileg geimferð frá gömlu höfninni

Samúel Karl Ólason skrifar
Orðin „brjálæðislega skemmtilegt“, voru þau fyrstu sem komu fra blaðamanni þegar hann tók af sér búnaðinn eftir að hafa prufað EVE Valkyrie í fyrsta sinn.
Orðin „brjálæðislega skemmtilegt“, voru þau fyrstu sem komu fra blaðamanni þegar hann tók af sér búnaðinn eftir að hafa prufað EVE Valkyrie í fyrsta sinn.
Möguleikar sýndarveruleika eru mörgum mikið umhugsunarefni þessa dagana. Íslenska fyrirtækið CCP vinnur nú að geimleiknum EVE: Valkyrie, sem setur leikmenn í sæti orrustuflauga í geimnum. Blaðamaður Fréttablaðsins kom við í höfuðstöðvum CCP við gömlu höfnina í Reykjavík í vikunni og atti þar kappi við starfsmenn CCP. Leikurinn er gerður fyrir sýndarveruleikabúnað, svo það líti út fyrir að leikmaður sé virkilega við stjórnvölinn á geimskipi. Réttast er að taka fram að blaðamaður stóð sig alls ekki vel, en tókst þó að skjóta einn niður í leiknum.

Um leið og leikmönnum er skotið af stað í geimskipi sínu er ómögulegt að láta fram hjá sér fara að sýndarveruleiki og tölvuleikir eiga mjög vel saman og þá kannski sérstaklega flugleikir og bílaleikir þar sem leikmenn sitja fastir í farartækjum og horfa út um glugga og kýraugu. Það kom oft fyrir að blaðamaður gleymdi að hann væri með sýndarveruleikabúnað á höfðinu og festist í því að horfa beint áfram, eins og spilað væri á hefðbundnum skjá.

Það tekur smá tíma að átta sig á þessu nýja umhverfi. Hægt er að horfa aftur fyrir sig og sjá þar skrokkinn á flugmanni geimskipsins og skoða stjórnklefa geimfarsins. Vopnum geimskipanna sem flogið er í Valkyrie er meðal annars miðað með því að horfa í kringum sig. Í eitt skipti dáðist blaðamaður um of að umhverfi leiksins og leit of mikið í kringum sig, í stað þess að fylgjast með því hvert hann væri að fljúga. Það endaði ekki vel. Upplifun af spilun leiksins var þó fyrst og fremst stórskemmtileg.

EVE: Valkyrie byrjaði sem gæluverkefni nokkurra starfsmanna CCP sem þeir þróuðu í frjálsum tíma og leyfðu gestum á EVE Fanfest 2013 að spila. Eldar Ástþórsson, fjölmiðlafulltrúi CCP, segir að viðbrögð gesta hátíðarinnar hafi verið svo góð og mikil að ákveðið var að að halda þróun hans áfram sem tilraunaverkefni. Það hafi þó verið tilkynnt á Gamescom-leikjaráðstefnunni í Köln í fyrra að CCP myndi þróa og gefa út leikinn undir núverandi nafni.

Leikurinn, sem er að mestu þróaður á skrifstofu CCP í Newcastle, mun koma út fyrir Oculus Rift-þrívíddarbúnaðinn á PC-tölvur og Project Morpheus-þrívíddargleraugun fyrir SONY PS4. Enn sem komið er er ekkert hægt að segja um útgáfudag hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×