Jól

Saga alþjóðlega jólasveinsins

Heilagur Nikulás var uppi á milli áranna 300 til 400. Hann var biskup í Myra í Litlu-Asíu þar sem nú er Tyrkland. Svo góður var biskupinn að eftir dauða hans spruttu upp afar fallegar sögur um hann. Því var Nikulás gerður að dýrlingi, heilögum manni. Kaþólskir menn kalla á dýrlinga sér til hjálpar enn í dag þegar þeir eiga bágt.

Eftir dauða sinn varð Nikulás dýrlingur barna og sjómanna. Hann hjálpaði börnum sem voru í hættu stödd og sjómönnum í háska. Nikulás varð svo vinsæll á miðöldum að hér á Íslandi voru 44 kirkjur helgaðar honum.

Þjóðirnar í Norður - Evrópu hættu að vera kaþólskar um 1500 og þá mátti fólkið ekki tilbiðja dýrlinga. Hollendingar máttu ekki lengur tilbiðja dýrlinga. Þá tók Sankti Nikulás á sig nýja mynd.

Hollendingar kölluðu hann Sinterklaas og gáfu gjafir á degi hans, 6. desember,og gera enn. Á 18. öld breyttist nafn hans í Santa Claus og gjafirnar sem hann gaf á degi sínum 6. desember fór hann að gefa á sjálfan jóladaginn.

Þegar Hollendingar fluttu til Bandaríkjanna á átjándu öld í þúsundatali kynntust aðrir innflytjendur Santa Claus og jólagjöfum hans. Þannig varð hann jólasveinn.

Fyrir rúmlega hundrað árum fékk Thomas Nast teiknimeistari í Bandaríkjunum þá hugmynd að búa til myndir af jólasveinum. Þess vegna vita allir núna hvernig Santa Claus lítur út.






×