Jól

Ó, Jesúbarn blítt

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

þitt ból er hvorki, mjúkt né hlýtt

þú komst frá háum himna stól

með helgan frið og dýrðleg jól

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

þú bauðst mér, gleðiefni nýtt

þinn föður á himnum ég einnig á

og ekkert mér framar granda má

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

þú bróðir minn ert og allt er nýtt,

þú komst í heim með kærleik þinn

þú komst með gleðiboðskapinn

Ó, Jesúbarn blítt

svo bjart og svo frítt

Texti: Margrét Jónsdóttir






×