Skoðun

Þriðjungur þjóðarinnar í strætó

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Aldrei hafa fleiri tekið sér far með vögnum Strætó bs. en á nýafstaðinni menningarnótt. Um 100 þúsund gestir komu í strætó einhvern tíma yfir daginn, en akstur stóð til eitt eftir miðnætti. Á sunnudeginum stóð Strætó, í samvinnu við Kópavogsbæ, síðan fyrir flutningum um 10 þúsund gesta á tónleika Justins Timberlake og um 15 þúsund frá þeim. Strætó bs. flutti því um 125 þúsund farþega á tveimur dögum, en það jafngildir því að vel ríflega þriðjungur þjóðarinnar hafi tekið sér far með strætó á einni helgi.

Heilt yfir gekk allt mjög vel og þakka má það góðri samvinnu við þá sem skipulögðu viðburðina. Sérstök stemning myndast á hátíðum sem þessum og þó þröngt væri í vögnunum sýndu farþegar einstaka þolinmæði og skilning. Strætó bs. þakkar þeim sérstaklega fyrir hve vel tókst til.

Ljóst er að strætó er mikilvægur hluti af Menningarnótt og mun verða það áfram. Góð reynsla er komin á þjónustuna, en á hverju ári lærum við eitthvað nýtt. Í ár var bryddað upp á þeirri nýjung að aka frá Kirkjusandi að Skólavörðuholti, með viðkomu í Borgartúni. Skemmst er frá því að segja að þetta vakti mikla lukku og þegar hefur verið ákveðið að tvöfalda fjölda vagna sem aka munu þá leið á Menningarnótt. Þá er líklegt að fleiri vagnar verði notaðir við að flytja fólk úr miðbænum að ári, en ekki er hægt að segja annað en að það hafi þó gengið vel þar sem það tók ekki nema um einn og hálfan tíma.

Við hjá Srætó bs. erum stolt yfir því hve starfsemi fyrirtækisins skiptir miklu máli í daglegu lífi margra og vinnum stöðugt að því að bæta þjónustuna svo sem flestir geti nýtt sér strætó. Markmið eigenda og stjórnvalda er að auka hlut þeirra ferða sem farnar eru með almenningssamgöngum úr 4% árið 2012 í 8% árið 2022. Mikil fjölgun hefur orðið á farþegum síðustu árin og almenningssamgöngur hafa fengið æ meiri sess í skipulagi sveitarfélaga. Ljóst er þó að allir þurfa að halda vel á spilunum ef fyrrgreind markmið eiga að nást. Það er hagur okkar allra.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×