Innlent

Bannað að gefa öndum brauð

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Frá 15. maí til 15. ágúst er fólk beðið um að gefa ekki öndunum brauð.
Frá 15. maí til 15. ágúst er fólk beðið um að gefa ekki öndunum brauð. Vísir/Pjetur
Á nýjum skiltum við Reykjavíkurtjörn kemur fram á íslensku og ensku að ekki skuli gefa öndunum brauð á sumrin.

Brauðgjöf laðar að sílamáva og þá aukast líkur á að nýklaktir andarungar verði þeim að bráð. Nóg fæða er á Tjörninni á sumrin og því ekki þörf á að fóðra endurnar.

Einnig getur mikið magn brauðs og drit fuglanna aukið lífræna mengun í Tjörninni þar sem fjöldi fugla margfaldast þegar sílamávarnir mæta á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×