Innlent

Norðurljósaver í Reykjadalnum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Byggingin mun hýsa rannsóknarstöð og gestastofu.
Byggingin mun hýsa rannsóknarstöð og gestastofu. fréttablaðið/vilhelm
Fyrsta skóflustunga að Norðurljósarannsóknarstöð á Kárhóli í Reykjadal var tekin gær. Byggingin verður rúmlega 700 fermetrar að stærð.

Auk aðstöðu til rannsókna verður gestastofa fyrir ferðamenn með sýningarrými og ráðstefnusal til kynningar á norðurljósunum.

Rannsóknarstarfsemi hófst haustið 2013 en starfsemi stöðvarinnar útvíkkar frekar þær mælingar sem þegar eru stundaðar hér á landi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×