Lífið

Brúðkaup Höllu Vilhjálms í Kólumbíu: Gifti sig í Veru Wang

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Nú eru Harry og Halla orðin hjón.
Nú eru Harry og Halla orðin hjón. myndir/einkasafn
„Við vorum á ferðalagi um Kólumbíu, Bogotá og nágrenni, alveg yfir þrjátíu manns, vikuna fyrir brúðkaupið. Við gistum meðal annars öll í húsi fjölskyldu Harrys en afi afa hans var forseti Kólumbíu sem frelsaði þrælana, sambærilegt Lincoln,“ segir fyrirsætan og leik- og söngkonan Halla Vilhjálmsdóttir. Hún gekk að eiga sinn heittelskaða, Harry Koppel, í Kólumbíu síðustu helgi. Harry og Halla hafa verið saman síðan sumarið 2012 og trúlofuðu sig í Istanbúl ári síðar.

Gullfalleg brúðhjón.
Um tvö hundruð manns voru í þessu veglega brúðkaupi og geislaði Halla á brúðkaupsdaginn í kjól frá Veru Wang og hælum frá Christian Louboutin.Móðir hennar prjónaði brúðarsjalið en Harry klæddist hefðbundnum kjólfötum frá Gieves & Hawkes. Halla kom eiginmanni sínum á óvænt í veislunni eftir athöfnina.

„Ég gaf Harry tónlist í brúðargjöf. Ég samdi til hans þrjú lög,“ segir Halla en faðir hennar, gítarleikarinn Vilhjálmur Guðjónsson, tók lag sem hann samdi til móður Höllu á saxófón í kirkjunni.

Brúðardansinn heppnaðist.
Halla segir allan daginn hafa verið töfrum líkastur og svífur hún enn um á bleiku skýi.

„Þetta var fullkomið og er það. Brúðardansinn tókst meira að segja í fyrsta skipti. Við höfðum engan tíma til að æfa svo við vorum óviss með útkomuna,“ segir hún glöð í bragði.

Eftir herlegheitin var síðan haldið í óvanalega brúðkaupsferð sem stendur enn.

„Morguninn eftir brúðkaupið flugum við til Cartagena, karabísku paradísarinnar, með sextíu manna hópi af okkar allra nánustu alls staðar frá. Kannski ekki algengt að fólk fari í brúðkaupsferð með foreldrum sínum og öllum vinum og foreldrum þeirra jafnvel,“ segir Halla og heldur áfram að slaka á og njóta hjónasælunnar í faðmi þeirra sem hún elskar.

Halla er í skýjunum og nýtur nú lífsins í Cartagena.
Halla söng fyrir Harry í veislunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×