Innlent

Nauðgaraummæli um Egil Einarsson dæmd dauð og ómerk

Bjarki Ármannsson skrifar
Egill höfðaði meiðyrðamál gegn Sunnu Ben Guðrúnardóttur og Inga Kristjáni Sigurmarssyni, sem bæði voru sýknuð í Hæstarétti.
Egill höfðaði meiðyrðamál gegn Sunnu Ben Guðrúnardóttur og Inga Kristjáni Sigurmarssyni, sem bæði voru sýknuð í Hæstarétti. Vísir/Vilhelm
Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í meiðyrðamáli Egils Einarssonar gegn Sunnu Ben Guðrúnardóttur. Ummæli Sunnu eru dæmd dauð og ómerk en hún þarf ekki að greiða Agli refsi- eða miskakröfur.

Sakaði Egil um nauðgun

Úrskurðurinn snýr að ummælum sem Sunna lét falla á Facebook-síðunni „Gillz af forsíðunni - krefjum Monitor um afsökunarbeiðni.“ Sú síða var stofnuð í kjölfar þess að viðtal við Egil, sem einnig er þekktur sem Gillz eða Gillzenegger, birtist í tímaritinu Monitor árið 2012 þar sem hann tjáði sig meðal annars um kærur tveggja kvenna sem borið höfðu hann sökum um kynferðisbrot. Mál kvennanna gegn Agli höfðu bæði verið felld niður þegar viðtalið birtist í Monitor.

Í dómi Hæstaréttar segir að það fari ekki á milli mála að Sunna hafi sakað Egil um nauðgun með því að skrifa að ekki væri um að ræða „árás á mann fyrir að segja eitthvað rangt, heldur fyrir að nauðga unglingsstúlku“ og gagnrýna mætti að „nauðgarar“ prýddu forsíður rita sem dreift væri um allan bæ.

Taldi sig hafa ástæðu til að ætla að hann væri sekur

Hæstiréttur taldi þó ekki sannað að Sunna  hefði sakað Egil um nauðgun gegn betri vitund, það er að hún hafi vitað að málin gegn honum hefðu verið felld niður.

„Skilja verður málatilbúnað gagnáfrýjanda á þann veg að hún telji sig hafa haft ástæðu til að ætla, í ljósi þess hatursáróðurs sem hún kveður aðaláfrýjanda hafa staðið fyrir gegn ýmsum hópum, svo sem konum, að hann hafi gerst sekur um það brot gegn A sem hann hafði verið kærður fyrir,“ segir í dómsorðum.

Egill Einarsson höfðaði einnig meiðyrðamál gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni í kjölfar umræðna um viðtalið í Monitor. Birti Ingi Kristján mynd af Agli úr ritinu á Instagram-síðu sinni með áletruninni „Fuck you rapist bastard.“ Ingi Kristján var sýknaður af meiðyrðum í Héraðsdómi Reykjavíkur og í Hæstarétti og ummælunum leyft að standa.


Tengdar fréttir

„Egill skapaði sjálfur skrípið“

Verjandi í meiðyrðamáli segir að Egill Einarsson sé hafi sjálfur skapað þá orðræðu sem hann stefnir nú fyrir. Engu skiptir hvort að það hafi verið í hans eigin nafni eða einhvers "skrípis“ eins og verjandinn komst að orði.

Mál Egils gegn konunum fellt niður

Ríkissaksóknari hefur fellt niður mál þriggja ungra kvenna sem Egill Einarsson kærði fyrir rangar sakargiftir. Ein kvennanna sakaði Egil um að hafa nauðgað sér og tvær vinkonur hennar báru vitni gegn honum.

Ummæli um Gillz dæmd ómerk

Stúlkan þarf auk þes að greiða 100 þúsund krónur í bætur til Egils, 30 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs og 800 þúsund krónur í málskostnað.

Nauðgaraummælin standa

Egill Einarsson tapaði meiðyrðamáli gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni, sem skrifaði "Fuck you rapist bastard“ á mynd af honum.

Egill „Gillz“ áfrýjar í meiðyrðamálum

Egill Einarsson hefur áfrýjað dómi Hérðaðsdóms Reykjavíkur sem féll í meiðyrðarmálum í fyrra. Lögmaður Egils segir dómana í ósamræmi við annan dóm sem féll skömmu áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×