Menning

23 fá heiðurslaun listamanna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Megas, Kristbjörg Kjeld og Þráinn Bertelsson eru á meðal þeirra sem njóta heiðurslauna listamanna út ævina.
Megas, Kristbjörg Kjeld og Þráinn Bertelsson eru á meðal þeirra sem njóta heiðurslauna listamanna út ævina.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að 23 einstaklingar fái heiðurslaun listamanna samkvæmt ákvörðun Alþingis á næsta ári. Þetta staðfesti Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi.

Samkvæmt lögum um heiðurslaun listamanna mega vera að hámarki 25 manns á listamannalaunum. Ekki var lagt til að bætt yrði við listann sem taldi 24 í fyrra. Ásgerður Búadóttir listvefari féll frá á árinu sem senn er á enda.

Unnur Brá segir í samtali við Vísi að auglýsa ætti á vef þingsins ef tilnefningum svo allir sitji við sama borð. Það hafi ekki gefist tími til þess í ár. Nefndarmenn vilji að farið verði yfir um utanumhald fyrirkomulags hvað varði heiðurslaun listamanna.

Í lögum segir að við úthlutun heiðurslauna skuli taka tillit til skipingar eftir listgreinum og kyni. Unnur Brá segir hins vegar vanta hvernig sú skipting eigi að vera. Engar tölur eða hlutfall sé til viðmiðunar.

„Við viljum fara í slíka vinnu til að vanda vinnubrögðin. Gera þetta þannig að allir sitji við sama borð.“

Heiðurslaun listamanna eru veitt listamanni að fullu til sjötíu ára aldurs og skulu vera þau sömu og starfslaun listamanna eru á hverjum tíma. Eftir sjötugt verða þau 80% af starfslaunum.

Að neðan má sjá þá 23 listamenn sem njóta launanna árið 2014. Heildarkostnaður við launin í fyrra voru í kringum 74 milljónir. Listamennirnir fengu á bilinu 2,9 til 3,7 milljónir króna í fyrra.

Atli Heimir Sveinsson

Edda Heiðrún Backman

Erró

Guðbergur Bergsson

Guðmunda Elíasdóttir

Gunnar Eyjólfsson

Hannes Pétursson

Jóhann Hjálmarsson

Jón Nordal

Jón Sigurbjörnsson

Jónas Ingimundarson

Jórunn Viðar

Kristbjörg Kjeld

Magnús Pálsson

Matthías Johannessen

Megas

Sigurður A. Magnússon

Vigdís Grímsdóttir

Vilborg Dagbjartsdóttir

Þorbjörg Höskuldsdóttir

Þorsteinn frá Hamri

Þráinn Bertelsson

Þuríður Pálsdóttir


Tengdar fréttir

Tuttugu og átta fá heiðurslaun listamanna

Gert er ráð fyrir að 28 listamenn hljóti heiðurslaun listamanna á næsta ári samkvæmt tillögu meirihluta fjárlaganefndar við vinnslu fjárlaga næsta árs.

Greiðir 44 milljónir króna í heiðurslaun listamanna

Alþingi greiðir listamönnum samtals 44 milljónir króna í heiðurslaun á næsta ári, samkvæmt breytingatillögu fjárlaganefndar við fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Alls fá 28 listamenn greidd heiðurslaun og fær hver um sig greiddar tæpar 1,6 milljónir króna á árinu.

Heiðurslaun Þráins vefjast fyrir Borgurum

„Ágæti Mummi (sem ég reyndar var svo óheppinn að sjá aldrei í kosningabaráttunni), Heiða og þið öll. Við skulum sameiginlega hafa eitt á hreinu. Hvort sem ég kemst á þing (vegna útstrikana) eða ekki mun ég ALDREI AFSALA mér heiðurslaunum Alþingis, alveg sama hversu mikil fáfræði ríkir um tilkomu þeirra og eðli (þau eiga ekkert skylt við kúlulán eða prófkjörsstyrki og eru ekki óheiðar-lega fengin),“ skrifar Þráinn Bertelsson á póstlista Borgarahreyfingarinnar (xO).

Heiðurslaun til 27 listamanna á næsta ári

27 listamenn munu fá heiðurslaun á næsta ári samkvæmt tillögu menntamálanefndar sem lögð hefur verið fram. Hver listamaður fær 1,6 milljónir króna og því nema launin samtals 43,2 milljónum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×