Skoðun

Á bjargi byggði ...

Guðrún Gígja Aradóttir skrifar
Mig langar aðeins að deila með ykkur mínum hugleiðingum um verkfall tónlistarkennara nú þegar tónlistarkennarar verið í verkfalli í rúmar tvær vikur. Sjálf læri ég á fiðlu og hef gert síðan ég var 5 ára gömul. Tónlistarnemendur hafa ekki verið nógu áberandi í þessu verkfalli og ætla ég að reyna að bæta úr því.

Ég held að ég tali fyrir flesta nemendur þegar ég segi að við styðjum að sjálfsögðu við bakið á tónlistarkennurum en við viljum líka að þessu verkfalli ljúki. Við erum mörg komin á framhaldsstig og því farið að styttast í útskrift en með þessu verkfalli þá missum við dýrmætan tíma með kennaranum okkar.

Þrátt fyrir það þá líðum við ekki það misrétti sem tónlistarkennarar hafa fengið að upplifa.

Gerið þið ykkur grein fyrir hversu marga góða tónlistarmenn við eigum á þessari litlu eyju? Hvaðan haldið þið að þeir komi? Margir af okkar flinkustu tónlistarmönnum eru einnig tónlistarkennarar. Þeir hafa verið að læra og æfa sig tímunum saman frá blautu barnsbeini til að sérhæfa sig í þessari grein.

Þetta fólk hefði getað orðið hvað sem er en þau ákváðu að fylgja ástríðu sinni og verða tónlistarmenn. Eftir að hafa útskrifast úr tilteknum tónlistarskóla er stefnan oft tekin út fyrir klakann í einhvern virtan tónlistarháskóla úti í heimi.

Svo þegar kennarar koma heima úr löngu framhaldsnámi býðst þeim lægra launað starf en aðrir kennarar í KÍ hafa. Er of mikið að biðja um jafnrétti í sama stéttarfélagi?

Það má líkja þessari aðför sveitarfélaganna að tónlistarmenntun á Íslandi við barnalagið „Á sandi byggði heimskur maður hús“ þar sem húsið stendur fyrir tónlistina á Íslandi. Grunnurinn að öllu tónlistarlífi er að sjálfsögðu tónlistarkennarar sem og tónlistarskólar og hefur þessi grunnur verið einn sá besti í Evrópu. En við verðum að horfa lengra fram í tímann. Ef stjórnin nær að valta yfir okkur og skera niður eins og henni sýnist eyðileggur hún grunninn sem við reisum húsið á og íslenska tónlistarmenningin (eins og við þekkjum hana hrynur.

Því bið ég ykkur, kæra samninganefnd, takið ábyrgð á framtíðinni og semjið við tónlistarkennara strax!




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×