Innlent

Krefjast gæsluvarðhalds yfir brennuvörgum á Akureyri

Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins.
Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins. Vísir/Pjetur
Tveir karlmenn, sem handteknir voru á Akureyri í gærmorgun, grunaðir um að hafa áður kveikt í bíl með bensínsprengju, eða svonefndum Molotov kokteil, eru enn í haldi lögreglunnar og verður karfist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim innan stundar.

Þeir voru  báðir í annarlegu ástandi þegar þeir voru handteknir þannig að yfirheyrslur hófust ekki fyrr en síðdegis. Þær hafa ekki leitt til niðurstöðu, enn sem komið er, en báðir mennirnir eiga langan afbrotaferil að baki.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×