Innlent

Í beinni: Samstöðufundur til stuðnings tónlistarkennurum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frá mótmælum tónlistarfólks.
Frá mótmælum tónlistarfólks. visir/valli
Samstöðufundur til stuðnings tónlistarkennurum fram fer í Hörpu klukkan fimm í dag.

Egill Helgason mun mæla fyrir munn foreldra barna í tónlistarnámi en samningafundi Félags tónlistarkennara og Sambands sveitarfélaganna lauk í gærkvöldi án samkomulags.

Fundað hefur verið í dag án árangurs en verkfall tónlistarkennara hefur nú staðið yfir í rétt tæplega mánuð.

Fundurinn í Hörpu verður sendur beint út á netinu og verður hægt að hlusta á ávörpin hér.

Uppfært kl. 18:50: Fundinum er nú lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×