Innlent

Fjölgun lögreglumanna mikilvægari en vopnavæðing

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Afbrotatíðni hefur lækkað jafnt og þétt síðustu tíu ár eða svo og það samhliða fækkun lögreglumanna.
Afbrotatíðni hefur lækkað jafnt og þétt síðustu tíu ár eða svo og það samhliða fækkun lögreglumanna. VÍSIR/GETTY
Lögreglukona og mannfræðingur segirumræðu um vopnaburð lögreglumanna á villigötum. Aðgengi að vopnum sé ekki til þess fallið að auka öryggi. Frekar hætti horfa til fjölgunar lögreglumanna og endurskoðunar á námi lögreglumanna. 

Afbrotatíðni hefur lækkað jafnt og þétt síðustu tíu ár eða svo og það samhliða fækkun lögreglumanna. Eins og fram kemur í ársskýrslum Ríkislögreglustjóra er breyting á fjölda á alvarlegra ofbeldisbrota (líkamsárásir, manndráp) óveruleg.



 
Eyrún Eyþórsdóttir, mannfræðingur og lögreglukona, bendir á að viðbúnaður hjá lögreglu er nauðsynlegur. Engu að síður sé mikilvægt að horfa til fjölgunar lögreglumanna og náms þeirra.

Eyrún fjallar um þetta í pistli sem hún skrifar í Fréttablaðið í dag. Hann ber heitið Fleiri löggur – færri byssur. Hún segir það vera óþarfa að almennir lögreglumenn hafi aðgang að skammbyssum og hríðskotarifflum.



 
„Það eru margar rannsóknir sem sýna fram á að vopnuð lögregla er ekki endilega til þess fallin að auka öryggi landsmanna eða lögreglumanna,“ segir Eyrún.

Lykillinn að því að auka öryggi og öryggiskennd almennings og lögreglumanna er að fjölga lögreglumönnum á ný og færa menntun þeirra á háskólastigið.



 
Eyrún Eyþórsdóttir, mannfræðingur og lögreglukona.
„Og efla þannig færni og hæfni allra lögreglumanna með því og þetta er það sem allar Norðurlandaþjóðir hafa verið að gera.“

Þá segir Eyrún að lögreglan búi við breyttan veruleika í dag. Landamæralausir glæpir, mismunandi lífsskoðanir, fjölmenningarsamfélagið Ísland og fleira tengist því sem hún kallar vopnavæðingu. Hríðskotabyssurnar, sem Landhelgisgæslan kallar gjöf en Norðmenn kaup, spili þar inn í.

„Ég held að þetta auki á öryggisleysi hjá lögreglumönnum og almennt hjá fólki. Og mögulega er þetta einhver viðbrögð við því,“ segir Eyrún að lokum. 


Tengdar fréttir

Aukið við vopnabúnað lögreglunnar

Verið er að auka við vopnabúnað íslensku lögreglunnar. Stefnt er að því að allir lögreglubílar landsins verði búnir Glock 17-hálfsjálfvirkri skammbyssu og MP5-hríðskotabyssu.

Svör – strax!

Það hefur varla farið fram hjá neinum að 250 stykki af MP5-hríðskotabyssum hafa bæst við vopnabúnað stjórnvalda. DV greindi frá málinu í síðustu viku og síðan það kom fyrst upp hefur það tekið á sig furðulegar myndir.

Fleiri löggur – færri byssur

Þegar ég stundaði nám í lögregluskólanum fór fram eina þjálfun mín í skotvopnum og var hún í mýflugumynd. Síðan eru liðin ellefu ár og ég er fullviss um að ég treysti mér ekki til að skjóta úr Glock eða hríðskotariffli. Ég er ekki einu sinni með skotvopnaleyfi!

Minna öryggi með vígbúnaði

Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur segir að aukinn vopnaburður lögreglu ýti undir notkun á vopnum á meðal glæpamanna. Þá sé framandi veruleiki að lögreglan búi yfir hátæknivopnum, fólk hrylli við slíku.

Fáum sendan reikning fyrir byssunum

Reikningur verði sendur fyrir 250 MP5 hríðskotabyssum sem Landhelgisgæslan telur sig hafa fengið að gjöf frá norska hernum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×