Upplýsir ekki um leiguverð vegna Timberlake-tónleika Þorbjörn Þórðarson skrifar 2. september 2014 19:26
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar segir að verð sem Sena greiddi fyrir leigu á Kórnum undir tónleika Justin Timberlake sé trúnaðarmál. Auk bæjarfulltrúa fengu makar bæjarfulltrúa boðsmiða á tónleikana en Ármann segir að boðsmiðar fyrir maka hafi verið vegna fjölskyldustefnu Kópavogsbæjar. Kópavogsbær fékk 30 boðsmiða á tónleika Justin Timberlake. Tuttugu og tveir miðar fóru til bæjarfulltrúa og maka þeirra og átta fóru til starfsmanna bæjarins.Í 6. gr. siðareglna fyrir kjörna bæjarfulltrúa og stjórnenda hjá Kópavogsbæ segir orðrétt: „Óheimilt er að þiggja gjafir, fríðindi eða önnur hlunnindi frá viðskiptamönnum eða þeim sem leita eftir þjónustu Kópavogsbæjar, ef líta má á það sem endurgreiðslu fyrir greiða eða sérstaka þjónustu.“ Kópavogsbær hefur ekki upplýst hvað Sena greiddi fyrir leigu á Kórnum undir tónleika Justin Timberlake. Ef Sena hefur fengið afslátt af leiguverði Kórsins vegna tónleikanna gæti það fallið undir greiða í skilningi siðareglna bæjarins. Talsverð röskun fylgdi tónleikunum enda voru þeir stórir að umfangi. Þannig þurfti að takmarka umferð um tónleikasvæðið fyrir og eftir tónleikana. Þá var húsnæðið eðli málsins samkvæmt ekki í notkun undir íþrótta- og æskulýðsstarf í um það bil viku vegna undirbúnings tónleikanna. Óskaði eftir miðum að fyrra bragði Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogsbæjar segist hafa beðið Senu um miða á tónleikana með það fyrir augum að sjá hvernig tónleikarnir heppnuðust og meta notagildi hússins með framtíðar tónleikahald í huga. „Ég óskaði eftir því að fulltrúar eigenda hússins fengu að vera þarna,“ segir Ármann í samtali við fréttastofu.Makar bæjarfulltrúa fengu líka boðsmiða á tónleikana.Voru þá makar bæjarfulltrúanna þarna til að meta framtíðarnotkunarmöguleika Kórsins? „Það er nú þannig að tónleikarnir voru á sunnudagskvöldi og það er kannski partur af okkar fjölskyldustefnu að makar komi með. Mér finnst það eðlilegt,“ segir Ármann.Fékk Sena afslátt af leigunni af Kórnum? „Verðskrá miðast við gjaldskrá Kórsins og Fífunnar. Þannig að það er ekki um neitt slíkt að ræða. Þar fyrir utan var gengið frá þessu á síðasta kjörtímabili fyrir einu ári síðan.“En fékk Sena afslátt? „Þeir fengu verð sem tók mið af gjaldskrá Kórsins og Fífunnar.“En fékk Sena afslátt? „Þetta er svarið sem ég hef. Þetta (verðið innsk.blm) tekur mið af því og ekkert hægt að svara því frekar. Verðið er trúnaðarmál.“Hvers vegna borgaði ekki Kópavogsbær fyrir miðana ef þið þurftuð að vera þarna til að meta framtíðarmöguleika hússins? „Að fara að eyða peningum úr bæjarsjóði svo bæjarfulltrúar fái aðgang að húsnæði bæjarins? Ég tímdi því ekki.“ Síðar í dag, eftir að viðtalið var tekið upp, fullyrti Ármann að Sena hefði greitt hærra verð fyrir leigu á Kórnum en íþróttafélög greiða fyrir hefðbundna notkun hússins, eins og knattspyrnuleiki en gaf ekki upp hvaða verð hafi verið greitt. Þess ber að geta að hefðbundið verð fyrir dags leigu á Kórnum undir knattspyrnuleiki er um 300.000 krónur, samkvæmt upplýsingum fréttastofunnar. Sena var með húsið á leigu í um viku. „Frábærar fréttir, ég er klár ásamt maka“ Málið tengt boðsmiðum bæjarfulltrúa komst upp eftir að Sigurjón Jónsson varabæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi lagði fram fyrirspurn um málið í bæjarráði. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í dag hafði þó Sigurjón sjálfur þegið boðsmiða á tónleikana í tölvupósti til Ármanns bæjarstjóra en fengið þau svör að boðsmiðar væru í boði fyrir aðal bæjarfulltrúa og maka þeirra eingöngu. Í fréttum Stöðvar 2 í kvöld sagðist Sigurjón hafa gert mistök og ekki hafa gert sér grein fyrir að slíkt gæti mögulega farið gegn siðareglum bæjarins.
Tengdar fréttir Sena bauð bæjarfulltrúum á Timberlake Varabæjarfulltrúi Framsóknarmanna í Kópavogi telur að siðareglur kunni að hafa verið brotnar er bæjarfulltrúar og makar fengu boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Hann bað sjálfur um miða en fékk ekki. Bæjarstjórinn svarar eftir helgi. 30. ágúst 2014 07:00 „Frábærar fréttir, ég er klár ásamt maka“ Bæjarstjóri Kópavogs segir hvern og einn bæjarfulltrúa hafa þegið tvo boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Varabæjarfulltrúi Framsóknar, sem telur siðareglur kunna að hafa verið brotnar, fékk enga miða því bæjarfulltrúi flokksins nýtti þá. 2. september 2014 07:30 „Ég svaraði bara um hæl án þess að pæla“ Varafulltrúi Framsóknarflokksins segir leiguverð á Kórnum í Kópavogi lykilatriði. 2. september 2014 10:41 Hluti af starfsskyldum að fara á tónleika Timberlake Bæjarfulltrúi VG í Kópavogi var einn þeirra sem þáði boðsmiða sem bárust bæjarskrifstofum frá Senu til að fara á tónleika Justins Timberlake í Kórnum um síðustu helgi. 30. ágúst 2014 14:46 Þriðjungur þjóðarinnar í strætó Aldrei hafa fleiri tekið sér far með vögnum Strætó bs. en á nýafstaðinni menningarnótt. Um 100 þúsund gestir komu í strætó einhvern tíma yfir daginn, en akstur stóð til eitt eftir miðnætti. 28. ágúst 2014 07:00 Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Auglýsa eftir „eiganda“ fjármuna Glæsileg þjóðbúningamessa á Hvolsvelli Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Sjá meira
Sena bauð bæjarfulltrúum á Timberlake Varabæjarfulltrúi Framsóknarmanna í Kópavogi telur að siðareglur kunni að hafa verið brotnar er bæjarfulltrúar og makar fengu boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Hann bað sjálfur um miða en fékk ekki. Bæjarstjórinn svarar eftir helgi. 30. ágúst 2014 07:00
„Frábærar fréttir, ég er klár ásamt maka“ Bæjarstjóri Kópavogs segir hvern og einn bæjarfulltrúa hafa þegið tvo boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Varabæjarfulltrúi Framsóknar, sem telur siðareglur kunna að hafa verið brotnar, fékk enga miða því bæjarfulltrúi flokksins nýtti þá. 2. september 2014 07:30
„Ég svaraði bara um hæl án þess að pæla“ Varafulltrúi Framsóknarflokksins segir leiguverð á Kórnum í Kópavogi lykilatriði. 2. september 2014 10:41
Hluti af starfsskyldum að fara á tónleika Timberlake Bæjarfulltrúi VG í Kópavogi var einn þeirra sem þáði boðsmiða sem bárust bæjarskrifstofum frá Senu til að fara á tónleika Justins Timberlake í Kórnum um síðustu helgi. 30. ágúst 2014 14:46
Þriðjungur þjóðarinnar í strætó Aldrei hafa fleiri tekið sér far með vögnum Strætó bs. en á nýafstaðinni menningarnótt. Um 100 þúsund gestir komu í strætó einhvern tíma yfir daginn, en akstur stóð til eitt eftir miðnætti. 28. ágúst 2014 07:00