Innlent

Vísindamenn farnir frá Holuhrauni vegna veðurs

Samúel Karl Ólason skrifar
Mun meira hraun er sagt renna úr sprungunni, sem nær einnig lengra til norðurs en hún gerði á föstudag.
Mun meira hraun er sagt renna úr sprungunni, sem nær einnig lengra til norðurs en hún gerði á föstudag. Vísir/Vilhelm
Skyggni er mjög lítið við Holuhraun og veður er slæmt og fer versnandi. Jarðvísindamennirnir sem fylgdust með gosinu í morgun hafa nú yfirgefið svæðið vegna veðurs. Nú er eingöngu fylgst með gosinu úr vefmyndavélum á svæðinu.

Hraun rennur til austurs úr sprungunni sem er um einn kílómeter að lengd. Talið er að hraun hafi runnið í þrjá kílómetra frá sprungunni. Jarðvísindamenn segja þetta gos vera töluvert stærra en gosið síðasta föstudag og að mun meira hraun renni úr sprungunni en þá.

Vísindamannaráð Almannavarna mun funda klukkan tíu og þá verður staðan metin. Einnig verður metið hvort ástæða þyki að fara í flug yfir svæðið, en það fer meðal annars eftir skyggni. Sandstormur er á svæðinu og veður afleitt eins og sjá má á vefmyndavél Mílu.

Í ráðinu sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands auk fulltrúa Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra.

Flug hefur verið takmarkað á litlu svæði yfir jöklinum vegna eldgossins en áfram verður fylgst með framþróuninni í samhæfingarstöð Almannavarna.


Tengdar fréttir

Gos hafið að nýju

Af vefmyndavél Mílu má glögglega sjá að gos er hafið að nýju í Holuhrauni norðan Dyngjujökuls, á sama stað og gos hófst aðfaranótt föstudags.

Stærra gos en síðast

"Þetta er hraungos og það er aðeins meira en síðast. Meira hraun sem er ósköp eðlilegt og eins og við var búist,“ segir eldfjallafræðingurinn Ármann Höskuldsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×