Innlent

120 mílna hættusvæði umhverfis eldstöðina

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Friðþór Eydal
Friðþór Eydal
Litakóði vegna flugs hefur verið færður upp í rautt og búið er að lýsa 120 sjómílna hættusvæði umhverfis eldstöðuna í Holuhrauni. Þó hefur engin flugumferð verið á þessu svæði í nótt.

„Hættusvæði, eða danger area, hefur ákveðna skilgreiningu í flugumferðarstjórn. Það er í raun það að blindflugsheimildir eru ekki veittar og flugvélar í venjulegu áætlunarflugi verða að sneiða hjá svæðinu,“ segir Friðþór Eydal upplýsingafulltrúi Isavia í samtali við fréttastofu.

Öskuvakt Isavia  og aðrir viðbragðsaðilar fylgjast nú með framvindu mála og verða frekari ákvarðanir teknar í samræmi við það.

Talið er að gosið hafi hafist um klukkan hálf eftir miðnætti. Vísindamenn eru á svæðinu við rannsóknir en talið er að um þunnfljótandi hraun sé að ræða.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×