Innlent

Hættustigi almannavarna lýst yfir vegna jarðhræringa

Bjarki Ármannsson skrifar
Við Bárðarbungu í gær.
Við Bárðarbungu í gær. Vísir/Sveinn
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórana á Húsavík og Seyðisfirði og í samræmi við mat vísindamanna ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna á svæðinu norðan Dyngjujökuls, en óvissustig hefur verið í gangi undanfarna daga. Ákveðið hefur verið að loka og rýma hálendið norðan Dyngjujökuls vegna jarðhræringanna í kring um Bárðarbungu.

Í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um sé að ræða öryggisráðstöfun þar sem ekki sé hægt að útiloka að jarðskjálftavirknin undir Bárðarbungu geti leitt til eldgoss með stuttum fyrirvara. Þó er tekið fram að enn eru engin merki um gos og reynsla úr fyrri jarðhræringum sýnir að þær geta staðið lengi yfir áður og ef kemur til goss.

Hefur lögreglan á Húsavík og Seyðisfirði nú þegar lokað leiðum inn á svæðið og vinnur að því að ná til þeirra ferðamanna sem eru á hálendinu norðan Dyngjujökuls í því skyni að þeir yfirgefi svæðið.

Hættustig almannavarna er skilgreint svo: „Ef hættumat leiðir í ljós að hætta fer vaxandi verður að grípa til tafarlausra ráðstafana til að tryggja sem best öryggi þeirra sem á svæðinu búa/dvelja. Slíkt er gert með því að efla viðbúnað neyðar- og öryggisþjónustunnar á viðkomandi svæði, ásamt því að grípa til fyrirbyggjandi aðgerða s.s. rýmingar, brottflutnings eða lokunar svæða. Einnig eru leiðbeiningar og viðvaranir einkennandi fyrir þetta stig.”


Tengdar fréttir

Virknin gengur áfram í bylgjum

Skjálftavirkni í kringum Bárðarbungu er enn mikil en þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Almannavarnardeild fundar og fer yfir ný gögn

"Það verður farið yfir öll ný gögn sem hafa borist undanfarinn sólarhring,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri Almannavarnardeildar Ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu.

Viðbúnaðarstig áfram appelsínugult

Ákveðið hefur verið að breyta ekki viðvörunarstigi fyrirflugmálayfirvöld vegna jarðhræringanna í og við Bárðarbungu.

Bárðarbunga gæti valdið hamförum við Dettifoss

Almannavarnir lýstu í dag yfir óvissustigi vegna jarðskjálftahrinu sem staðið hefur yfir í Bárðarbungu frá því í nótt. Kvika er talin vera á hreyfingu í eldstöðinni.

Enn mikil skjálftavirkni undir Bárðarbungu

Heldur dró úr skjálftavirkni undir Bárðarbungu upp úr miðnætti en svo jókst hún aftur um fjögur leytið í nótt og varð brátt álíka og í fyrrinótt, þegar vel á þriðja hundrað skjálftar mældust frá miðnætti til klukkan sex í gærmorgun.

Brýrnar gætu sópast burt og Dettifoss sorfist niður

Hrinan í Bárðarbungu er mjög öflug og full ástæða til að gera ráð fyrir eldgosi, að mati sérfræðings Veðurstofu Íslands. Viðvörun gagnvart alþjóðaflugi var í dag sett á næstefsta stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×