Innlent

„Ég hef aldrei íhugað að segja af mér“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
„Ég hef aldrei íhugað að segja af mér vegna þessa máls, enda hef ég ekki brotið af mér,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra um lekamálið svokallaða en hún verður í ítarlegu viðtali í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Mikil umræða hefur verið um málið að undanförnu og nokkur þrýstingur hefur verið á ráðherrann að tjá sig um málið sem hún gerir nú í fyrsta sinn í sjónvarpi. Valtýr Sigurðsson fyrrverandi ríkissaksóknari lýsti meðal annars þeirri skoðun sinni í hádegsfréttum Rúv að Hanna Birna ætti að víkja.

Hér að ofan er hægt að sjá stutt brot úr viðtali Gunnars Atla Gunnarssonar fréttamanns við Hönnu Birnu þar sem hann spyr hvort hún hafi íhugað að segja af sér sem ráðherra.


Tengdar fréttir

„Protected by a silver spoon…“

Stefán Eiríksson, fyrrverandi lögreglustjóri, er klár maður eins og hann hefur sannað í Útsvari. Líklega hefur honum þó aldrei tekist betur upp en með birtingu Bítlalagsins Bathroom Window á Twitter í vikunni.

Íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu

Þingmenn stjórnarandstöðunnar íhuga að leggja fram vantrauststillögu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra þegar þing kemur saman í haust. Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá ráðherra varðandi meint afskipti hennar af rannsókn lögreglu á lekamálinu.

Hanna svarar í dag

Innanríkisráðherra veitir umboðsmanni Alþingis upplýsingar um meint afskipti af rannsókn Lekamálsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×