Fótbolti

Hörður Björgvin orðaður við Cesena

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hörður Björgvin í leik með Spezia.
Hörður Björgvin í leik með Spezia. Vísir/Getty
Forráðamenn ítalska úrvalsdeildarfélagsins Cesena eru sagðir áhugasamir um Hörð Björgvin Magnússon, varnarmann Juventus.

Hörður Björgvin lék með Spezia í B-deildinni á nýliðnu tímabili en félagið hafði þá keypt helmingshlut í samningi Harðar.

Sameiginlegt eignarhalda á leikmönnum er hins vegar orðið óheimilt á Ítalíu og gekk því Juventus frá nýjum fjögurra ára samningi við Hörð Björgvin í síðasta mánuði.

Hann er nú sagður á leið til Cesena sem leikur sem nýliði í ítölsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×