Innlent

Friðrik Brynjar í 16 ára fangelsi

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Friðrik Brynjar í héraði.
Friðrik Brynjar í héraði. Vísir/Villi
„Þetta eru mikil vonbrigði, dómurinn er bara rangur,“ segir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Friðriks Brynjars Friðrikssonar, sem var dæmdur í sextán ára fangelsi í Hæstarétti í dag. Friðrik var dæmdur fyrir morð á Karli Jónssyni, aðfaranótt 7. maí 2013 á Egilsstöðum. Karl var stunginn 92 sinnum.

Friðrik var upphaflega dæmdur í 16 ára fangelsi í Héraðsdómi Austurlands þann 23. október síðastliðinn en dómnum var áfrýjað til Hæstarétts. Tveir dómskvaddir matsmenn fóru yfir rannsókn lögreglunnar og gögn málsins. Í vitnaleiðslum þann 27. maí sögðu þeir að gögn málsins ekki staðfesta með afgerandi hætti að Friðrik hefði banað Karli.

Matsmennirnir gagnrýndu meðal annars ljósmyndir sem lögregla hafði tekið af vettvangi glæpsins en sumar þeirra þóttu óskýrar og ónothæfar við yfirferð matsmannanna. Þá vantaði ljósmyndir frá öllum sjónarhornum meðal annars í tilfelli blóðugs handarfars sem fannst á svalahandriði íbúðarinnar þar sem Karl var drepinn.

Friðrik Brynjar í Héraðsdómi Austurlands.
„Hann reyndi að kyssa mig“

Við aðalmeðferðina í Héraðsdóms Austurlands var upptaka úr samtali Friðriks Brynjars við Neyðarlínuna spiluð.  Símtalið hófst á orðunum: „Já halló, ég heiti Friðrik Brynjar. Ég held ég hafi drepið mann.“

„Ég kýldi hann einu sinni, beint hnefahögg, og hann datt niður og ég dró hann með mér út fyrir svalirnar,“ heyrðist Friðrik segja við starfsmann Neyðarlínunnar.

Friðrik var auðheyranlega drukkinn á upptökkunni og á köflum í samtalinu var hann greinilega í miklu uppnámi.

„Ég er í sjokki,“ sagði hann. „Ég vil ekki fara til hans.“

Í samtalinu fullyrti Friðrik að hann hefði ekki slegið Karl að ástæðulausu. „Hann réðst á mig,“ sagði hann og: „Hann reyndi að kyssa mig.“

Missti meðvitund á 10 til 30 sekúndum

Í aðalmeðferð málsins gaf þýskur réttarmeinafræðingur skýrslu og kom fram í máli hans að spor eftir hund hefðu fundist í blóði inni á heimili Karls. Það kom heim og saman við frásögn Friðriks Brynjars sem sagði fyrir dómi að hann hafi verið hundinn sinn með sér.

Réttarmeinafræðingurinn lýsti því að morðinginn hefði veitt karli 92 áverka með hnífi „með miklum ofsa og ofbeldi“. Gat hafi komið á hjarta hans og tveir lítrar af blóði hafi verið í brjóstholi hans þegar lögregla kom á vettvang. Hann hafi að líkindum misst mjög fljótt meðvitund eftir stungurnar í brjóstholið, líklega eftir tíu til þrjátíu sekúndur.

Til marks um ofsann nefndi sá þýski að gríðarlegt afl þurfi til að stinga hníf í gegnum rifbein manns, auk þess sem brot úr hnífnum hefðu orðið eftir í höfði Karls.

Réttarmeinafræðinginn var spurður hvort hugsanlegt væri að Karl hefði veitt sér áverkana sjálfur, og sá þýski svaraði með semingi að mögulega hefði hann getað stungið sig einu sinni af slíku afli í brjóstholið, en aldrei tvisvar.


Tengdar fréttir

Friðrik Brynjar í 16 ára fangelsi

Friðrik Brynjar Friðriksson var nú fyrir stundu dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni nágranna sínum að bana í byrjun maí síðastliðinn.

Blóðferlar samræmast frásögn sakbornings

Sérfræðingar í blóðferlarannsóknum hafa skilað af sér matsgerð í morðmáli frá Egilsstöðum þar sem fram kemur að túlkanir rannsóknarlögreglunnar á vettvangi hafi verið rangar. Verjandi ákærða segir matsgerðina staðfesta framburð ákærða.

Lögregla henti sönnunargögnum

Lögreglan fargaði sönnunargögnum tengdum morðinu á Karli Jónssyni sem átti sér stað á Egilsstöðum í maí í fyrra. Þetta kom fram við málflutning í Hæstarétti í gær.

Samskiptabrestur tafði morðrannsókn á Egilsstöðum

Svo virðist sem samskiptabrestur á milli Neyðarlínunnar, fjarskiptamiðstöðvar Ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Egilsstöðum hafi orðið til þess að morðrannsókn á Egilsstöðum seinkaði um nokkrar klukkustundir.

Grunaður morðingi var ofurölvi

Friðrik Brynjar Friðriksson, sem sætir ákæru fyrir morðið á Karli Jónssyni á Egilsstöðum í vor, var mjög ölvaður eða jafnvel með áfengiseitrun kvöldið sem Karl var myrtur.

"Ég veit ég gerði þetta ekki“

Aðalmeðferð í manndrápsmáli stendur nú yfir í Héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum. Þar er Friðrik Brynjar Friðriksson ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana á Egilsstöðum þann 7. maí síðastliðinn.

Gögn málsins sanna ekki morðið á Karli

Tveir matsmenn, sem fengnir voru til að yfirfara gögn í Egilsstaðamorðmálinu svokallaða, eru sammála um öll atriði málsins. Þeir segja að gögn málsins ein og sér leiði ekki sekt Friðriks Brynjars Friðrikssonar, sem var dæmdur í fangelsi, í ljós.

Manndrápsmál í héraðsdómi fyrir austan

Aðalmeðferð í manndrápsmáli stendur nú yfir í héraðsdómi Austurlands á Egilsstöðum. Friðrik Brynjar Friðriksson er ákærður fyrir að hafa orðið Karli Jónssyni að bana á Egilsstöðum þann sjöunda maí síðastliðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×