Innlent

„Fumkennd vinnubrögð“ í máli Hunters

Bjarki Ármannsson skrifar
Hundurinn Hunter hefur verið týndur á Miðnesheiði frá því á föstudag en dýralæknir mun sinna honum í kvöld.
Hundurinn Hunter hefur verið týndur á Miðnesheiði frá því á föstudag en dýralæknir mun sinna honum í kvöld.
„Þetta eru hálf fumkennd vinnubrögð,“ segir Árni Stefán Árnason lögfræðingur. „Sem kemur nú ekki á óvart af hálfu Matvælastofnunar og þú mátt hafa það eftir mér.“

Líkt og greint hefur verið frá fannst hundurinn Hunter fyrr í kvöld eftir langa leit, en hann slapp úr búri sínu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á föstudag. Hann er nú kominn í flugskýli Icelandair og beðið er dýralæknis. Árni Stefán, sem hjálpað hefur til við leitina undanfarna daga, er ósáttur með hegðun stjórnvalda í máli Hunters.

„Matvælastofnun lét ekkert sjá sig og enginn opinber aðili, eigandinn stóð fyrir þessu alveg sjálf,“ segir hann. „Nú er einhver óvissa um framhaldið. Samkvæmt Tollgæslu á að senda hann út á morgun, ég veit ekki hvort hann fer í sóttkví eða hvað. Það hefur væntanlega verið tekin ákvörðun í málinu, en ég veit ekki hver hún er.“

Eigandi Hunters, sænsk kona búsett í Bandaríkjunum, fann hundinn sjálf eftir ábendingu sem barst Árna fyrr í dag. Hún bíður nú þess að fá að vita hver næstu skref í málinu verða.

„Hún er óánægð með framkvæmdina alla,“ segir Árni Stefán. „Málið er að það er ekki vitað hvað á að gera í svona aðstæðum. Það bara er hvergi fest niður í lög.“

Hunter slapp þegar verið var að flytja hann í aðra flugvél en hann og eigandi hans millilentu hér á leið yfir Atlantshafið. Strangar reglur gilda um innflutning hunda til Íslands og var hvarf hans því litið alvarlegum augum.

Eigandi hundsins bauð tvö hundruð þúsund króna fundarlaun sem ekki verða greidd út, fyrst hún fann hann sjálf.

„Ef ég hefði fundið hann, þá hefði ég gefið launinn til dýraverndunarstarfs hér á landi,“ segir Árni Stefán, sem bauð fram hjálp sína við leit að Hunter. „Það var aldrei þess vegna sem ég tók þátt, ég bara þekki vel til hunda og taldi mig geta hjálpað.“


Tengdar fréttir

"Leitin algjörlega stjórnlaus“

Hvorki tangur né tetur hefur fundist af hundinum Hunter sem slapp úr búri sínu á föstudaginn þrettánda júní síðastliðinn á Keflavíkurflugvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×