Innlent

Spáin hækkar í 22 stiga hita

Kristján Már Unnarsson skrifar
Einna hlýjast verður inn til landsins á stöðum eins og Þingvöllum. Sólarvörn og flugnanet gætu komið sér vel um helgina.
Einna hlýjast verður inn til landsins á stöðum eins og Þingvöllum. Sólarvörn og flugnanet gætu komið sér vel um helgina. Vísir/Pjetur.
Veðurstofan hefur endurskoðað spá sína fyrir hvítasunnuhelgina, - og það til hins betra. Spáin er jafnframt áminning um sólarvörn. Núna er gert ráð fyrir að hámarkshiti helgarinnar geti náð allt að 22 gráðum inn til landsins en í veðurspánni í gær var „bara“ spáð allt að 20 stiga hita.

Veðurspáin fyrir morgundaginn, föstudag, gerir áfram ráð fyrir allt að 20 stiga hita í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi, hægri breytilegri átt eða hafgolu og bjartviðri, en þokulofti með austurströndinni. Spáin fyrir laugardag og sunnudag, sól og blíða og brakandi þurrkur um mest allt land, hljóðar svo á veðurfræðingamáli:

„Hæg breytileg átt eða hafgola og bjartviðri en sums staðar þokubakkar við ströndina. Hiti 10 til 22 stig, hlýjast inn til landsins.“

Á mánudag er svo búist við vætu í flestum landshlutum og eitthvað svalara veðri. Spáin fyrir þriðjudag og miðvikudag í næstu viku er svo best fyrir suðvestan- og vestanvert landið með allt að 17 stiga hita þar.


Tengdar fréttir

Spá 20 stiga hita

Sól og blíða eru framundan, einkum inn til landsins, og stefnir í hlýja hvítasunnuhelgi og kjöraðstæður fyrir tjaldútilegu, samkvæmt veðurspá Veðurstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×