Viðskipti innlent

Birgir Bieltvedt eignast helmingshlut í Gló

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson og Birgir Þór Bieltvedt sést hér hægra megin.
Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson og Birgir Þór Bieltvedt sést hér hægra megin. visir/ellý/hafliði
Fjárfestirinn Birgir Þór Bieltvedt og eiginkona hans, Eygló Björk Kjartansdóttir, hafa keypt helmingshlut í veitingahúsakeðjunni Gló en þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag.

Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson, verða áfram eigendur fyrirtækisins ásamt nýjum fjárfestum.

Veitingarstaðir Gló eru þrír talsins en stefnt er að því opna fleiri staði í nánustu framtíð.

Til lengri tíma litið sé horft til að opna veitingastaði undir nafninu Gló erlendis en fram kemur í frétt Viðskiptablaðsins að horft sé á skandínavískan og bandarískan markað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×