Innlent

Játar hvorki fyrsta sætinu né neitar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir.
Boðað hefur verið til aukakjördæmisþings Framsóknarmanna í Reykjavík í kvöld þar sem nýr framboðslisti fyrir borgarstjórnarkosningarnar verður kynntur. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna, verða kynnt til sögunnar sem nýr oddviti.

„Ég verð að segja no comment. Þú verður bara að mæta á fundinn í kvöld,“ sagði Sveinbjörg létt í samtali við Vísi í dag.

Óskar Bergsson hætti sem oddviti í byrjun mánaðarins og stóð til að Guðni Ágústsson myndi taka við forystusætinu en hann hætti hins vegar við í síðustu viku. Fréttastofa hefur gert ítrekaðar tilraunir til að ná í Þóri Ingþórsson, formann kjördæmasambands framsóknarmanna í Reykjavík, í morgun en án árangurs.

„Það er tækifæri til breytinga og að konur í Framsókn láti til sín taka. Það er ein af ástæðunum fyrir því að ég gef kost á mér,“ sagði Sveinbjörg í samtali við Vísi fyrir helgi. Þá lá ljóst fyrir að auk Sveinbjargar væri Guðrún Bryndís Karlsdóttir einnig klár að leiða lista flokksins í borginni.


Tengdar fréttir

Leita enn að nýjum oddvita

Guðni Ágústsson hætti við að taka oddvitasæti framsóknarmanna í Reykjavík á elleftu stundu. Leit framsóknarmanna að oddvita stendur enn yfir þegar rúmur mánuður er til kosninga.

Konurnar klárar en forystan ósannfærð

"Þetta er bara spurningin hverjum er treyst til að leiða listann,“ segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna.

Aukakjördæmaþingi var frestað í tvígang

Brösuglega hefur gengið fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík að ná saman lista til borgarstjórnar. Aukakjördæmaþingi hefur verið frestað tvívegis, þann 5. apríl og 24. apríl. Þriðja tilraun til aukakjördæmaþings verður þann 29. apríl næstkomandi.

Óskar Bergsson dregur sig í hlé

Í nýrri tilkynningu kemur fram að Óskar Bergsson er hættur við að leiða Framsóknarmenn í komandi borgarstjórnarkosningum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×