Innlent

Fagnaði bónusnum með joggingbuxum

Elimar Hauksson skrifar
Ekki er ólíklegt að myndbirtingin sé hugsuð sem svar við þeirri gagnrýni að Gunnar sé börnum slæm fyrirmynd.
Ekki er ólíklegt að myndbirtingin sé hugsuð sem svar við þeirri gagnrýni að Gunnar sé börnum slæm fyrirmynd. Facebook/MjölnirMMA
Gunnar Nelson fagnaði 50 þúsund dollara bónus, vegna UFC-bardagans gegn Rússanum Omari Akhmedov með því að festa kaup á nýjum joggingbuxum á útsölu í fataversluninni H&M.  Á Fésbókarsíðu Mjölnis má sjá mynd af Gunnari í buxunum en þar kemur fram að kollegi Gunnars, bardagakappinn Conor McGregor, hafi notað tækifærið þegar hann fékk sinn bónus til þess að kaupa klæðskerasniðin jakkaföt af dýrustu tegund í Dublin á Írlandi.

Á Fésbókarsíðu Mjölnis má einnig sjá nokkrar myndir af Gunnari og föruneyti hans ásamt Conor McGregor í bjórverksmiðju Guinnes á Írlandi og fór afar vel á með köppunum tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×