Sport

Hendricks nýr meistari í þyngdarflokki Gunnars | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Bandaríkjamaðurinn Johnny „Bigg Rigg“ Hendricks er nýr heimsmeistari í veltivigt UFC-sambandsins í blönduðum bardagalistum (MMA) eftir sigur á RobbieLawler í titilbardaga aðfaranótt sunnudags.

Kanadamaðurinn Georges St-Pierre drottnaði yfir veltivigtinni í sex ár og var ósnertanlegur en hann sagði skilið við íþróttina í desember á síðasta ári og ákvað DanaWhite, forseti UFC, að Hendricks og Lawler myndu berjast um beltið.

Bardagi þeirra var algjörlega magnaður en þeir skiptust á höggum í fimm lotur. Hendricks var mun betri í fyrstu tveimur lotunum en Lawler kom sterkur til baka í næstu tveimur og réðust úrslitin ekki fyrr en í þeirri síðustu.

Þar var Hendricks sterkari en hann sýndi mikla yfirvegun, valdi höggin vel og náði svo fellu undir lok bardagans sem gerði útslagið.

Hendricks fagnaði vægast sagt vel þegar tilkynnt var að dómararnir hefðu komist að einróma niðurstöðu um sigur hans.

Hann er nú búinn að vinna 16 bardaga (og tapa 2) í UFC, þar af tólf í röð. Sigur hans ætti að hjálpa okkar manni, GunnariNelson, upp metorðalistann og vonandi fá titilbardaga gegn Hendricks áður en langt um líður. Nema auðvitað einhver annar hirði af honum beltið áður.

Þennan magnaða bardaga má sjá í spilaranum hér að ofan.

Vísir/Getty
Vísir/Getty
Vísir/Getty
MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×