Sport

Gunnar: Ekki slæmt að vera á vinalista Dana White

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dana White, forseti UFC, og Gunnar eftir bardagann í gær.
Dana White, forseti UFC, og Gunnar eftir bardagann í gær. Vísir/Getty
Gunnar Nelson segir í samtali við Vísi vera ánægður með þau skilaboð sem hann sendi með sigrinum á Omari Akhmedov í gær.

„Maður sendir alltaf ákveðin skilaboð út í þetta samfélag eftir hvern sigur - sérstaklega þegar hann er svona sannfærandi,“ sagði Gunnar af sinni alkunnu yfirvegun þegar Vísir sló á þráðinn til hans í morgun. Hann var þá staddur í hótelherbergi sínu í Lundúnum.

„Ég er bara helvíti hress með þetta,“ bætti hann við í léttum dúr. „Þetta gekk alveg vonum framar. Bardaginn fór á minn veg frá a til ö og alltaf gaman þegar hlutirnir ganga svona vel upp.“

Gunnar tekur andstæðing sinn hálstaki í gær.Vísir/Getty
Í viðtali sem Gunnar veitti í átthyrningnum eftir bardagann í gær sagðist hann aldrei fara inn í bardaga með ákveðna leikáætlun í huga. En hann sagðist hafa ákveðnar hugmyndir um hvernig Akhmedov myndi berjast.

„Við vissum að hann myndi sveifla höndunum með gríðarlegum krafti. Högg eins og þau sem hann veitir eru hrikalega þung og öflug. Þau taka talsvert úr manni,“ sagði Gunnar.

„En þau eru líka hægari og auðveldara að sjá þau. Ég tók mér því smá tíma til að pressa á hann og fá hann til að slá. Á þeim tíma er ég að lesa hann og næ svo að koma inn með eitt högg sem smellhitti hann og þá hrundi hann í gólfið.“

„Þá tók „mountið“ við og ég fór aðeins að mýkja hann,“ bætti Gunnar við en eftir að glíman tók við í gólfinu lét Gunnar höggin dynja á Akhmedov, bæði með hnefa og olnboga. Rússinn fékk skurð undir vinstra auganu sem blæddi talsvert úr en það sást ekkert á Gunnari.

Gunnar lét höggin dynja á Akhmedov.Vísir/Getty
Eftir bardagann fékk Gunnar mikið lof frá Dana White, forseta UFC, sem veitti honum sérstakan frammistöðubónus upp á 50 þúsund dali - um fimm og hálfa milljón króna.

„Hann leit stórkostlega vel út í kvöld. Hugsið um það, hann er búinn að vera meiddur í töluverðan tíma, kemur til baka og berst við grjótharðan mann. Hann leit stórkostlega út og ég var hæstánægður með frammistöðu hans,“ sagði White og Gunnar var ánægður með þessi orð hans.

„Þetta er bara flott mál. Það er ekki slæmt að vera á vinalista hjá Dana White,“ sagði Gunnar.

Fram kom á blaðamannafundinum að Gunnar hefði áhuga á að taka þátt í UFC-bardagakvöldi sem fer fram í Dublin í Írlandi í júlí.

„Það væri gaman en þessir menn eru að skipuleggja þetta allt saman. Ég bíð bara eftir næsta símtali og þá kemur þetta í ljós.“

Gunnar heldur næst til Dublin með þjálfara sínum, John Kavanagh, en kemur svo aftur heim til Íslands síðar í vikunni.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×