Innlent

Mörður afhenti lögreglu minnisblaðið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mörður segir að skýrslutakan hafi ekki tekið langan tíma og átti hann alltaf von á því að lögreglan myndi biðja um minnisblaðið.
Mörður segir að skýrslutakan hafi ekki tekið langan tíma og átti hann alltaf von á því að lögreglan myndi biðja um minnisblaðið. visir/valli
„Þetta tók alls tólf mínútur og ég var spurður út í það hvort ég væri með umrætt minnisblað undir höndum. Ég svaraði því játandi og afhenti síðan lögreglunni blaðið,“ segir Mörður Árnason,  varaþingmaður Samfylkingarinnar.

Mörður hefur gagnrýnt Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra, varðandi lekamálið. Hann var boðaður til skýrslutöku hjá lögreglunni í morgun í tengslum við málið.

Mörður hefur áður upplýst að hann hafi umrætt minnisblaðið undir höndum og það bæri öll einkenni þess að eiga uppruna til innanríkisráðuneytisins.

„Ég var boðaður í gær og mætti síðan klukkan átta í morgun,“ segir Mörður í samtali við Vísi.

Mörður segir að skýrslutakan hafi ekki tekið langan tíma og átti hann alltaf von á því að lögreglan myndi biðja um minnisblaðið.

„Ég bjóst við að fá þær spurningar sem ég fékk í skýrslutökunni og svaraði ég þeim eins vel og ég gat,“ segir Mörður sem vildi ekki fara nánar út í málið. 

Leki á trúnaðargögnum úr ráðuneytinu hefur verið kærður til lögreglunnar. Umrætt minnisblað rataði í hendur fjölmiðla.


Tengdar fréttir

Lekamálið komið til lögreglunnar

Ríkissaksóknari hefur framsent kæru, vegna leka á persónuupplýsingum hælisleitanda til fjölmiðla, til embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram á vef ríkissaksóknara.

Hvatt til óháðrar rannsóknar á lekamálinu

Innanríkisráðherra segir ítarlega rannsókn innan innanríkisráðuneytisins og stofnana þess sýna að minnisblað um hælisleitanda hafi ekki komið úr ráðuneytinu. Mörður Árnason er með minnisblaðið.

Ríkissaksóknari óskar eftir frekari gögnum um lekamálið

Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, hefur óskað eftir frekari gögnum og upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu vegna kæru lögmanns hælisleitenda um leka á trúnaðargögnum úr ráðuneytinu.

Mun ekki tjá sig efnislega um lekamálið fyrr en niðurstaða liggur fyrir

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, hefur ítrekað beðist undan því að mæta í viðtal í Kastljósið til að ræða trúnaðarbrest sem kom upp í innanríkisráðuneytinu. Hún hafði áður samþykkt að veita Kastljósi viðtal í vikunni en hefur hætt við það í bili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×