Innlent

Með á sjötta hundrað vélmenni heima hjá sér

Hrund Þórsdóttir skrifar
Húsið við Heiðarbraut 33 á Akranesi lætur kannski ekki mikið yfir sér, en þar inni leynast heldur betur gersemar. Í bílskúrnum reka íbúarnir spennandi flóamarkað sem byrjaði smátt en vatt upp á sig og er nú opið fyrstu helgi hverrar mánaðar.

Og er þetta vinsælt?

„Alveg rosalega. Við þurftum næstum því að hleypa inn í hollum í gær, það var svo margt fólk sem vildi koma hingað,“ segir Kristbjörg Traustadóttir.

Í íbúðarhúsinu sjálfu er svo eitt áhugaverðasta safn landsins, með á sjötta hundrað vélmenna, sem eigandinn, Björgvin Björgvinsson, hefur safnað í 15 ár. „Ég rakst á róbóta á antíkmarkaði í Danmörku, á Jótlandi og síðan hafa þeir streymt inn,“ segir Björgvin.

Hann sækist helst eftir japönskum vélmennum frá árabilinu 1950 til 1975, sem hann kallar gullaldartímabil þess konar leikfanga.

En af hverju vélmenni?

„Ég veit það ekki, þetta er heillandi; hönnunin, útlitið og litirnir. Um leið og ég keypti þann fyrsta fyrir 15 árum, var ekki aftur snúið.“

Mörg vélmenni eru í uppáhaldi en Björgvin nefnir tvö, sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Hann kveðst sjálfur ekki hafa átt svo fín leikföng í æsku.

Hvernig heldurðu að söfnunaráhuginn hafi kviknað hjá þér?

„Ég veit það ekki. Ég hef alltaf safnað einhverju en síðustu 15 ár hefur þetta bara snúist um þessa söfnun, vélmenni og önnur geimtengd leikföng frá þessum árum,“ segir hann.

Í meðfylgjandi frétt er litið í heimsókn til Björgvins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×