Jól

Hollar og sætar

Júlía getur varla beðið eftir jólunum. "Jólamaturinn verður hrein kalkúnabringa, villisveppasósa með kókosmjólk, bökuð sætkartöflustappa með pecan-hnetum, ferskt grænt salat, hrátt rauðrófusalat og epla-waldorf-salat með kasjúhneturjóma.”
Júlía getur varla beðið eftir jólunum. "Jólamaturinn verður hrein kalkúnabringa, villisveppasósa með kókosmjólk, bökuð sætkartöflustappa með pecan-hnetum, ferskt grænt salat, hrátt rauðrófusalat og epla-waldorf-salat með kasjúhneturjóma.” mynd/gva
 Júlía Magnúsdóttir er heilsumarkþjálfi sem veit fyrir víst að vel er hægt að njóta sætinda og vellystinga jóla með matarást og góðri samvisku.



„Konur koma til mín eftir að hafa prófað allt mögulegt og ég finn út með þeim hvað hentar þeirra sérstaka líkama, hjálpa þeim að léttast og finna þyngd sem líkama þeirra líður vel í,“ segir Júlía sem af ástríðu og áhuga gerðist heilsumarkþjálfi við nám í næringarfræðiskólanum Integrative Nutrition.

„Ég hafði ekki hugmynd um að ég myndi verða heilsumarkþjálfi en en eitt leiddi af öðru og einn daginn spurði vinkona mín: „Vilt þú vera heilsuþjálfinn minn?“ Ég svaraði því játandi, ákvað að prófa og þegar vinkonan fór fram úr væntingum sínum með þyngdartap, orku og vellíðan ákvað ég að halda áfram,“ útskýrir Júlía sem í starfi sínu nýtur þess að hjálpa konum við að ná eðlilegu þyngdartapi, meiri orku og betra hormónajafnvægi með heilsumarkþjálfun hjá Lifðu til fulls.

„Heilsumarkþjálfun er lífsstílsbreyting til frambúðar. Öll erum við misjöfn og það sem virkar fyrir einn þarf ekki endilega að virka fyrir þann næsta. Þyngdartap er stór ávinningur heilsumarkþjálfunar og betri líðan í eigin skinni. Þegar borðuð er hrein fæða og fullkomnari næring eykst almenn vellíðan og orka og líkaminn hættir að krefjast skyndibita og sykurs. Þessu fylgir aukið sjálfstraust, verkjaminni eða verkjalaus líkami, betra jafnvægi á líkama og sál og meiri lífsgæði,“ upplýsir Júlía sem kennir skjólstæðingum sínum að njóta lífs og líka sætinda með réttu fæðuvali.

„Jólasmákökurnar hafa fá innihaldsefni og því auðvelt fyrir líkamann að melta þær og brjóta niður. Þær eru lausar við algengar ofnæmisvaldandi fæðutegundir eins og glúten, egg, mjólkurvörur og sykur. Margir eru með viðkvæmni eða óþol fyrir þeim án þess að vita af því og það getur valdið baráttu við aukakílóin. Með því að velja matvæli sem eru laus við þessar fæðutegundir eykst þyngdartap í stað þess að úr verði þyngdaraukning eins og hvítt hveiti, sykur og mjólkurvörur gera flestum.“

Í smákökum Júlíu er næringarríkt möndlumjöl og möndlumjólk. „Möndlur eru kolvetnalágar en háar í prótíni og fitu sem styður við þyngdartap. Möndlur halda blóðsykri líka í skefjum og gefa andoxunarefni sem styðja við hreinsun líkamans,“ segir Júlía um sannkallað heilsugóðgæti sitt.

Á www.lifdutilfulls.is er hægt að skrá sig á ókeypis fjarnámskeið hjá Júlíu og fá fría rafræna uppskriftabók með dýrindis eftirréttum og sætindum.



Súkkulaðibitakökur sem þú trúir varla að séu hollar



1 bolli glútenlausir hafrar, malaðir

1 1/4 bolli möndlumjöl

1/2 tsk. matarsódi

1/2 tsk. vínsteinslyftiduft

1/2 tsk. salt

1/2 bolli ólífuolía

1/2 bolli hunang (má einnig nota hunang og agave/hlynsíróp til helminga)

1 tsk. vanilludropar

1/2 bolli lífrænt 70% súkkulaði eða dekkra

Malið hafrana í matvinnsluvél eða blandara þar til úr verður hveitiáferð. Sameinið olíu, hunang og vanilludropa í litla skál. Sameinið möndlumjöl, malaða hafra, matarsóda og lyftiduft í stóra skál. Sameinið blautu blönduna í litlu skálinni við þurrefnin í stóru skálinni og hrærið saman með sleif. Bættu við söxuðu súkkulaði. Takið deigið með matskeið og setjið á bökunarpappír. Hafið hverja köku um 4 cm með því að dreifa aðeins úr þeim með blautum fingrum og hafið 4 cm á milli þeirra. Bakið við 180°C í 12-15 mín. og slökkvið þá á ofninum. Látið kökurnar bíða í ofninum í um 7-10 mínútur áður en þær eru fjarlægðar úr ofninum. Látið kólna. Bestar með kaldri möndlumjólk!






×