Lífið

Þorvaldur Davíð landaði hlutverki í Hollywood

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Þorvaldur Davíð Kristjánsson landaði hlutverki í kvikmyndinni Dracula. Það er kvikmyndasamsteypan Universal Studios sem stendur á bak við myndina en framleiðandinn er Michael de Luca.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson landaði hlutverki í kvikmyndinni Dracula. Það er kvikmyndasamsteypan Universal Studios sem stendur á bak við myndina en framleiðandinn er Michael de Luca.
„Ég er mjög sáttur, það er ekki annað hægt. Þetta er frábært tækifæri,“ segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson, sem á dögunum landaði hlutverki í stórmynd á vegum Universal Studios.

Um er að ræða kvikmynd byggða á sögunni um Drakúla greifa og ber myndin einfaldlega heitið Dracula. Framleiðandi myndarinnar er Michael De Luca en hann hefur meðal annars framleitt stórmyndirnar Magnolia, The Social Network, Blade og Moneyball.

Þorvaldur má ekki tjá sig um efni og innihald myndarinnar en er ánægður með sitt hlutverk. „Ég er mjög sáttur við handritið eins og staðan er í dag. En kvikmyndageirinn er alltaf óútreiknanlegur svo maður veit ekki hvernig þetta fer á klippiborðinu,“ segir leikarinn, sem heldur utan til æfinga eftir tvær vikur.

„Ég fer til Belfast að æfa í smá tíma og flýg svo aftur heim. Svo fer ég aftur út í haust og verð í Belfast í nokkra mánuði,“ segir Þorvaldur, en hann segir tökurnar fara fram að stærstum hluta í norður-írsku höfuðborginni.

Þorvaldur Davíð er einnig kominn á fastan samning hjá Borgarleikhúsinu og fer með aðalhlutverkið í sýningu leikhússins á verkinu „Furðulegt háttalag hunds um nótt“. Hann kveðst spenntur yfir komandi leikári og segist hlakka til að vinna með góðum hópi leikara í Borgarleikhúsinu.

En það eru ekki aðeins stórir hlutir að gerast á leiksviðinu. Þorvaldur á von á barni með unnustu sinni, Hrafntinnu Viktoríu Karlsdóttir, svo fram undan er nýtt og spennandi hlutverk utan leiksviðsins.

„Það styttist í þetta hjá okkur, þetta er voðalega spennandi. Það er allavega nóg að gera og maður reynir bara að taka eitt skref í einu og klára hvern dag fyrir sig. Það eru að minnsta kosti stórir hlutir fram undan.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×