Fótbolti

"Þetta var bara grín. Sigurwin er á lífi"

Sigurwin lifir. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur Hallbera Guðný beðist afsökunar á gríninu.
Sigurwin lifir. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd hefur Hallbera Guðný beðist afsökunar á gríninu. Mynd/Instagram
"Sigurwin er ennþá á lífi. Ég er ábyggilega komin á einhvern svartan lista í Svíþjóð - þessir Svíar hafa engan húmor," segir Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í knattspyrnu.

Eins og fram kom á Vísi í morgun, og haft var eftir sænskum fjölmiðlum, var íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu kært fyrir dýraníð fyrir að sturta gullfisknum Sigurwin, lukkudýr landsliðsins á Evrópumótinu, ofan í klósettið eftir tapið gegn Svíum í gær.

Hallbera Guðný birti mynd af Sigurwin og klósetti á Instagram-síðu sinni í gær með textanum: "Þessi fer beint í klósettið. Bölvaður svikari."

"Þetta var bara grín. Ég myndi aldrei koma illa fram við dýr," segir Hallbera Guðný. "Sigurwin fékk að fara heim með Erlu Hendriks til Danmerkur. Hann er kominn í stórt og gott fiskabúr. Ég þurfti að skrifa afsökunarbeiðni við Instagram-myndina. Ómar fjölmiðlafulltrúi er búinn að fá endalaust af fyrirspurnum."


Tengdar fréttir

Sigurwin er nýja lukkudýr íslensku stelpnanna

Það styttist óðum í fyrsta leik íslensku stelpnanna á EM kvenna í fótbolta sem hófst með leikjum í A-riðli í dag. Á morgun er síðan komið að B-riðlinum þar sem íslenska liðið er í eldlínunni.

Stelpurnar okkar kærðar fyrir dýraníð

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur verið kært fyrir dýraníð en gullfiskurinn Sigurwin fékk að kenna á vonbrigðum stúlknanna í Svíþjóð í gær.

Lukkudýrið Sigurwin er að slá í gegn í Svíþjóð

"Það var einn frakkur fótboltakappi frá Vestmannaeyjum sem hét Sigurvin Ólafsson og kallaður Venni,“ sagði Elísa Viðarsdóttir aðspurð um nafnið á lukkudýri kvennalandsliðsins, en hún fékk það hlutverk að passa upp á hann eftir sigurleikinn á móti Hollandi í kvöld.

Sigurwin fékk dekur í gær

Sænsku blaðamennirnir höfðu mikinn áhuga á lukkudýri íslenska kvennalandsliðsins, gullfisknum Sigurwin.

Leynivopn Íslands var einn á íþróttaforsíðu Aftonbladet

Það er óhætt að segja að lukku-gullfiskurinn Sigurwin hafi stolið fyrirsögnunum í Aftonbladet í morgun en Ísland og Svíþjóð mætast á morgun í átta liða úrslitum EM kvenna í fótbolta. Forsíðan á sportsíðum Aftonbladet í morgun var einföld og táknræn.

Sara Björk: Hann Sigurwin er nagli eins og við

Sara Björk Gunnarsdóttir kom með þá hugmynd að setja Sigurwin, lukku-gullfisk íslenska kvennalandsliðsins, á grasið fyrir leik Íslands og Hollands á Myresjöhus Arena í Växjö á miðvikudaginn. Áhrifin leyndu sér ekki, frábær fyrri hálfleikur og glæsilegur sigur á Hollandi, sigur sem kom íslenska liðinu áfram í átta liða úrslit keppninnar.

Margrét Lára sterk í sænskunni á blaðamannafundinum

Margrét Lára Viðarsdóttir og Sigurður Ragnar Eyjólfsson voru fulltrúar Íslands á blaðamannafundi í dag þar sem farið var yfir leik Íslands og Svíþjóðar í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×