Erlent

Klámhundurinn Weiner enn í veseni

Jakob Bjarnar skrifar
Weiner ásamt konu sinni á blaðamannafundinum. Á netinu gegnir hann hins vegar nafninu Carlos Danger.
Weiner ásamt konu sinni á blaðamannafundinum. Á netinu gegnir hann hins vegar nafninu Carlos Danger.
Borgarstjóraefnið í New York, Anthony Weiner, virðist ekki geta stillt sig þegar netið er annars vegar; enn hefur hann verið gripinn við þá iðju að senda konum kámfengin skilaboð og myndir á netinu.

Weiner hefur nú viðurkennt að hafa sent konu nokkurri dónaleg skilaboð. Þetta er tveimur árum eftir að hann þurfti að yfirgefa þingið vegna hliðstæðra mála. Ónefnd kona greindi vefsíðunni The Dirty frá því að hún hafi átt í sambandi við hinn 48 ára gamla Weiner undanfarið árið.

Weiner, sem hefur verið efstur í skoðanakönnunum yfir borgarstjóraefni demókrata að undanförnu, baðst opinberlega afsökunar á þessu í gær. Árið 2011 hélt hann því fram að Twitter-reikningur sinn hefði sætt tölvuárás en viðurkenndi svo að hafa sent ungum konum klámfengnar myndir.

Weiner hélt blaðamannafund ásamt konu sinni í gær þar sem hann baðst afsökunar en sagðist ekki ætla að draga framboð sitt til baka, en kosið verður í november. Þrír keppinauta hans hafa hins vegar farið fram á að hann dragi sig umsvifalaust til hlés. Kona hans, Huma Abedin, tilkynnti á blaðamannafundinum að hún elskaði mann sinn og fyrirgæfi honum. En, gerði ekki lítið úr því að hann hefði gjarnan mátt sleppa þessu.

Konan sem um ræðir, sú sem Weiner var að dónast við á netinu, segir að hún hafi fengið skilaboð frá honum í júlí 2012 og samband þeirra hafi staðið í hálft ár. Hún var 22 ára þegar þau hittust á samskiptavefnum Formspring. Konan heldur því fram að Weiner hafi þar gengið undir nafninu Carlos Danger. The Dirty hefur eftir konunni að hún hafi þá verði ung og heimsk. En vilji nú hún að lýðum sé gert það ljóst að Weiner sé að ljúga þegar hann vilji draga af sér þá mynd að hann sé nýr og betri maður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×