Erlent

Barack Obama: "Trayvon Martin hefði getað verið ég“

Trayvon Martin (innfelld mynd) var skotinn til bana í febrúar í fyrra.
Trayvon Martin (innfelld mynd) var skotinn til bana í febrúar í fyrra. samsett mynd/AFP
„Trayvon Martin hefði getað verið ég,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi í dag.

Obama sagði Bandaríkjamenn af afrískum uppruna hafa séð málið með reynslu sína og sögu til hliðsjónar, og jafnframt að sárafáir þeldökkir karlmenn hefðu ekki orðið fyrir mismunun vegna kynþáttar síns í Bandaríkjunum.

Þá sagðist hann dást að foreldrum Martins, en hann var skotinn til bana í Flórída í febrúar 2012. George Zimmerman, sá sem skaut, sagðist hafa gert það í sjálfsvörn, og var sýknaður af ákærum um morð í síðustu viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×