Innlent

Kölluð heimsk og veruleikafirrt tík

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur á undanförnum dögum verið kölluð heimsk og veruleikafirrt tík af netverjum sem eru henni ósammála um hvort ÁTVR eigi að vera opið á sunnudögum.

„Það kom mér á óvart, ég bjóst ekki við þessu eftir að hafa svarað einni spurningu hjá blaðamanni Fréttatímans,“ segir Áslaug Arna.

„Ég tek þetta ekki inn á mig, ef fólk vill tjá sig svona um mig undir eigin nafni, þá er það þeirra mál,“ segir hún.

Ísland í dag hitti Áslaugu Örnu og rifjaði upp málefnaleg ummæli netverja um hana og hennar skoðanir.

Horfa má á umfjöllun Íslands í dag hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×