Lífið

Notar maskara sem þykkir hárin og þéttir

Ellý Ármanns skrifar
Bjargey Elíasdóttir sem búsett er í Lúxemborg upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar.

"Upphaflega byrjaði ég að nota snyrtivörur 14 ára gömul. Þær voru svartur maskari og fölur varalitur. Í raun var það ekki fyrst varalitur sem ég setti á varirnar heldur zinkpasti sem ég og vinkona mín settum á okkur til að gera varirnar hvítar. Það var í tísku þá að hafa hvítar varir. Við vorum að gera okkur sætar fyrir Kinks hljómleika í Austurbæjarbíói.

Allar götur síðan hefur mér fundist þetta tvennt mikilvægast fyrir mig og þykir enn. Augu og varir eru það mikilvæga í andlitinu okkar og segja margt um hvernig okkur líður," segir Bjargey áður en upptalning hefst.

Dior varalitur

"Minn uppáhalds varalitur núna er frá Dior. Dior Addict nr. 612 "spotlight" Hann frískar uppá varirnar, undirstrikar brosið og kallar fram náttúrulegan lit varanna, án þess að vera áberandi. Hann nota ég daglega, ef ég fer út að kvöldi set ég yfirleitt aðeins rauðari lit á varirnar."

Brown Shaping kit frá Benefits

"Þegar ég var ung þá var ég sambrýnd með þykkar dökkar augabrýr. Þær hafa nú þynnst og ég hef líka verið að plokka þær í gegnum tíðina. Svo nú þarf ég að hjálpa þeim, bæði hressa þær við með lit og lyfta og til þess nota ég Benefits vörurnar "Brow Shaping kit" og "quick set brow gel" algerlega ómissandi fyrir mig."





YSL maskari

"Maskarinn sem ég hef notað síðast liðin 2 ár er frá YSL "shocking" hann þykkir hárin og þau virðast þéttari, burstinn er góður fyrir mín augnahár og þessi maskari klessist ekkert. Augnahárin mín eru frekar gisin og stundum set ég svart gel í augnahára botninn með hár fínum bursta til að þau sýnist þéttari. Mér finnst mjög mikilvægt að nota augnahára uppbrettara áður en ég set maskarann á."

Naked 2 urban decay augnskuggar

"Það fer ekki framhjá okkur þegar við eldumst að augnsvipurinn okkar dofnar og því þarf að nota skugga til að gefa augunum meiri dýpt og þokka ef má segja svo. Mín uppáhalds lita palletta er "Naked 2 urban decay" í boxinu eru 12 skuggar sem hægt er að leika sér með, allt eftir því í hverju maður er í og hvað stendur til. Og burstinn í boxinu er sá bersti sem hægt er að fá. Góður fyrir eldri húð, því hún er jú ekki rennislétt lengur. Burstar og pennslar eru svo mikilvægir fyrir förðun og gæði þeirra eru mismunandi. Það er mikilvægt að geta eignast marga og góða bursta ef hægt er. Ég þvæ mína bursta reglulega með handsápu, skola og þerri varlega með handklæði. Burstana sem eru með lengri og þykkari hárin þurrka ég stundum með hárþurrku."

Dior Captur Totale meik

"Dior vörurnar hafa mér alltaf fundist góðar og hef lengi haldið mig við Dior meik og laust púður í línunni "Capture Totale".

Bjargey Elíasdóttir.
"Já það er sko langt síðan að Kinks hljómleikarnir voru, en það er enn jafn gaman að setja á sig "andlit" mála sig og hressa smá uppá útlitið þó maður sé orðin 60 ára. Það breytist ekki," segir Bjargey áður en kvatt er.


Tengdar fréttir

Loksins fann ég rétta farðann

Jóhanna Þórarinsdóttir ÍAK einkaþjálfari og norðurlandameistari í bekkpressu leggur mikla áherslu á náttúrulegt útlit. Hún upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún notar.

Notar maskara sem þykkir og lengir augnhárin

"Ég á í raun frekar lítið af snyrtivörum og nota þær hóflega. Ég er ákaflega vandlát á snyrtivörur og hef eytt drjúgum tíma, vangaveltum og aur í að finna þessar vörur sem ég mæli hér með," segir Steinunn Vala hönnuður...

Ómissandi snyrtivörur Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir ástríðukokkur með meiru hefur í nægu að snúast þessa dagana en hún heldur úti fróðlegri matarsíðu PureEbba.com samhliða því að skrifa matreiðsluækur á sinn einstaka máta. Lífið spurði Ebbu hvaða fimm snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Snyrtivörurnar sem Svala Björgvins notar

Söngkonan Svala Björgvins sem er búsett í Bandaríkjunum er stórglæsileg kona með áberandi fallega húð. Hún upplýsir okkur hvaða húð- og snyrtivörur hún getur ekki verið án.

Lífrænar vörur sem gera kraftaverk

"Það gerir mann svo miklu sætari á grámyglulegum morgnum. Þetta krem er ekki farði en það gerir mann útiteknari. Líflaust andlitið peppast upp og fær á sig örlítið brúnni blæ. Mæli eindregið með því."

Eftir allt sukkið í desember þarf maður næringu fyrir húðina

"Eftir allt sukkið í desember í konfekti, mat, drykk og svefninn á hvolfi þarf maður næringu fyrir húðina. Ég ákvað að taka smá treat á þetta núna til að fríska mig aðeins við á nýju ári," segir Eva Dögg eigandi Tiska.is...

Virkar eins og hrukkustraujárn

"Ég er auðvitað snyrtivörusjúk og með hrukkufóbíu á háu stigi og mér finnst hrikalega gaman að nota snyrtivörur," segir Margrét.

Ef ég fíla eitthvað þá kaupi ég það aftur

"Ég er nú ekki mikið fyrir mála mig mikið dags daglega en er alltaf með maskara frá Helen rúbinstein sem er algjör snillð að mínu mati hann gerir augnahárin þettari og lengri sem öllum konum langar að ná fram."

Snilld fyrir mömmur sem verða stundum þreyttar

Manúela Ósk Harðardóttir sem heldur meðal annars úti tískublogginu M-x-k.com upplýsir okkur um fimm vörur sem hún getur ekki verið án þegar kemur að húð- og hárumhirðu.

Notar krem stútfullt af andoxunarefnum

Ingunn Jónsdóttir vöruhönnuður og starfsmaður nýsköpunardeildar Matís er stórglæsileg kona sem hefur nóg að gera samhliða móðurhlutverkinu. Við forvitnuðumst hvaða snyrtivörur hún notar dags daglega.

Augnhárabrettir ómissandi til að skerpa augun

María Builien Jónsdóttir nemi og eigandi ICE import ehf upplýsti okkur um fimm snyrtivörur sem hún getur ekki verið án. Hún leggur áherslu á góð næringarrík krem á sama tíma og hún viðurkennir fúslega að hún verslar sér ódýra eye-liner í næstu matvörubúð.

Ég er áskrifandi að þessari snilld

"Allir ættu að eiga þetta bronzing gel. Ég er áskrifandi að þessari snilld. Mjög fallegur litur og eðlilegur. Sleppa að meika sig dags daglega og skella þessu á sig, maskara og glossi og taramm..."

Húðin verður frískari og mjúk sem silki

"Ég á endalaust mikið af augnskuggum og varalitum. Um leið og ég uppgötvaði snyrtivörur var í raun ekki aftur snúið," segir Marín Manda Magnúsdóttir...

Ég elska varaliti og nota þá daglega

María Björk Sigurpálsdóttir fyrirsæta og klæðskeranemi hugsar vel um húðina og hárið. Hún er óhrædd við að nota eldrauðan varalit og eyeliner enda fer það henni áberandi vel. María upplýsir okkur hvaða snyrtivörur hún getur ekki verið án.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×