Innlent

Hlægilega lágar bætur

Erla Hlynsdóttir skrifar
Læknafélag Íslands hefur verið dæmt til að greiða Páli Sverrissyni miskabætur vegna birtingar á viðkvæmum persónuupplýsungum um hann í Læknablaðinu. Páli finnst bæturnar, þrju hundruð þúsund krónur, skammarlega lágar.

Þetta byrjaði allt með því að Páll leitaði til Heilbrigðisstofnunar Austurlands árið 2011 eftir að hafa slasast á hendi. Það var mögrum mánuðum síðar sem hann komst að því að læknisheimsóknin hans hafði blandast inn í deilur tveggja lækna, deilu sem síðar var tekin fyrir af siðanefnd Læknafélagsins. Fyrir mistök birtist kafli úr sjúkdómsgreiningu Páls í úrskurði siðanefndar, í Læknablaðinu.

„Það var í raun og veru læknir sem gat gefið út vottorð um að ég væri vitlaus - hann gerði það, þeir tóku mark á því og gáfu það út opinberlega," segir Páll.

Málið fór fyrir Persónuvernd sem komst að þeirri niðurstöðu að óheimilt hafi verið að birta upplýsingarnar úr sjúkraskrám Páls - burt séð frá því hvort hann hafi verið nafngreindur eða ekki.

Hann stefndi bæði Læknafélaginu og ritstjóra Læknablaðsins, og dæmdi Héraðsdómur Reykjaness í málinu fyrir helgi.

Þetta eru 300 þúsund krónur sem þú færð í bætur, hvað finnst þér um þessa upphæð?

„Hlægileg. Hún nær ekki vikulaunum lækna. Ef að sjúkraskrár eiga að vera opnar og þetta eigi að skapa fordæmi um það, hvað yrði gert ef svona lagað gerist, ég held að enginn vilji það," segir Páll.

Þorbjörn Jónsson, formaður Læknafélagsins, segir í samtali við fréttastofu að dómurinn komi ekki á óvart. Læknafélagið hafi þegar viðurkennt að um mistök hafi verið að ræða og beðið Pál afsökunar. Hinsvegar hafi félagið hafa haft efasemdir um greiðslu miskabóta.

Dómurinn hefur enn ekki verið ræddur í stjórn Læknafélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×