Innlent

Vonast til að Vilborg nái á pólinn í dag

Vilborg Arna Gissurardóttir á ferðalagi sínu.
Vilborg Arna Gissurardóttir á ferðalagi sínu.
Vilborg Arna Gissurardóttir nær að öllum líkindum langþráðu takmarki sínu í dag að vera fyrsti Íslendingurinn sem gengur einn síns liðs á Suðurpólinn samtals um 1140 kílómetra. Vilborg gekk í gær tæplega 20 kílómetra og á því eftir um 18 kílómetra á Pólinn. Hún hefur því að líkindum sofið sína síðustu nótt í göngutjaldinu sem verið hefur hennar næturstaður í hálfan annan mánuð. Vilborg gæti hæglega náð Pólnum um klukkan 15 að staðartíma eða klukkan 18 að íslenskum tíma.

Síðustu dagar hafa reynst Vilborgu erfiðir enda hafa veður og aðstæður allar verið óhagsstæðar en þar að auki hefur Vilborg glímt við magakveisu og lítilsháttar kal á lærum.

Aðstæðurnar hafa gert það að verkum að hún hefur þurft að ganga tíu dögum lengur en fyrstu áætlanir hennar gerðu ráð fyrir.

Á bloggsíðu Vilborgar, www.lifsspor.is, má lesa allt um ferð hennar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×