Jólin

Uppskrift að piparkökuhúsi

Rannveig Birta Sigurgeirsdóttir, tólf ára, segir lítið mál að baka piparkökuhús en hún fór að baka ein þegar hún var átta ára.
Rannveig Birta Sigurgeirsdóttir, tólf ára, segir lítið mál að baka piparkökuhús en hún fór að baka ein þegar hún var átta ára. MYND/VALLI

Rannveig Birta Sigurgeirsdóttir er tólf ára nemandi í Kelduskóla-Korpu. Hún er mikill bakari og sigraði í smákökusamkeppni Gestgjafans í fyrra með uppskrift að gómsætum karamellukökum.



Rannveig Birta byrjaði að baka sjálf þegar hún var átta ára og er því þegar komin með nokkra reynslu í eldhúsinu. Hún gerði sér lítið fyrir og vann smákökukeppni Gestgjafans á síðasta ári með uppskrift að gómsætum karamellukökum og er óhrædd við að gera tilraunir í eldhúsinu. Hún viðurkennir reyndar að stundum verði útkoman ekki alltaf eins og hún ætlaði. "Ekki alltaf, en ég held að það hafi gerst hjá öllum," segir hún hlæjandi. "Ég ætla ekki að verða bakari í framtíðinni. Mig langar frekar til að verða dansari."

Rannveig segir ekki erfitt að baka piparkökuhús og hefur búið til piparkökuhús með smá aðstoð frá mömmu sinni undanfarin ár. "Það er ekkert erfitt og bara frekar gaman. Við notuðum uppskrift sem við fundum á www.mommur.is í þetta hús. Piparkökur eru samt ekki uppáhaldskökurnar mínar á jólunum. Það eru sörur."

Uppskriftina fann Rannveig á vefnum www.mommur.is.

Piparkökudeig

200 g smjörlíki

200 g púðursykur

2 dl síróp

1/5 tsk. engifer

2 msk. kanill

1/2 tsk. negull

1 msk. matarsódi

1 stórt egg

1/2 tsk. lyftiduft

700-750 g hveiti



Allt sett í pott nema egg og hveiti. Hrært stöðugt í þar til suðan kemur upp. Potturinn tekinn af hellunni og egg og hveiti sett út í. Deigið er hnoðað upp og flatt út meðan það er enn volgt. Þakplötur og veggir skornir út og bakað í 10-12 mínútur við 180°C hita.

Glassúr til að festa húsið saman og skreyta

2 stórar eggjahvítur

2 2/3 bolli sigtaður flórsykur

nokkrir dropar af sítrónusafa

gelmatarlitur

Eggjahvítum og 1 1/3 bolla af flórsykrinum er hrært saman með gaffli.

2. Restinni af flórsykrinum er þeytt saman við með handþeytara þar til blandan er orðin stífþeytt. Stundum þarf að bæta flórsykri saman við til að gera blönduna þykkari.

3. Nokkrum dropum af sítrónusafa er hrært saman við.

4. Hægt að setja matarlit út í.

Gott er að setja raka tusku yfir skálina með glassúrnum.

Búið til kramarhús úr smjörpappír eða klippið lítið gat á hornið á plastpoka og notið til að sprauta glassúrnum úr. Byrjið á að festa veggina saman og endið á þakinu þegar þeir eru orðnir stöðugir. Skreytið.






×