Jól

Innbökuð nautalund á hátíðarborðið

Innbökuð nautalund með madeira-sósu er ljúffengur matur.
Innbökuð nautalund með madeira-sósu er ljúffengur matur.
Ekki eru allir sem vilja borða hamborgarhrygg eða hangikjöt á jólum. Hvernig væri að prófa lúxus nautasteik?



Margir borða nautalund á jólum eða um áramót. Wellington-naut er þekktur veislumatur víða um heim. Gott er að skipuleggja sig vel svo veislan heppnist sem best. Uppskriftin miðast við sex manns.

Það sem þarf:

Um það bil 1,2 kg nautalund

2 tsk. salt

1 tsk. nýmalaður pipar

2 msk. smjör

1 pakki frosið smjördeig

1 egg

Sveppafylling

150 g ferskir sveppir

1 laukur

2 msk. smjör

3 msk. fersk steinselja

2 dl brauðraspur

½ tsk. salt

½ tsk. pipar

Grænmeti

12 ferskir sperglar (aspas)

6 tómatar

250 g spínat

Kínakál, smátt skorið

4 skalottlaukar

2 msk. smjör

1 tsk. salt

½ tsk. pipar

Safi úr hálfri sítrónu

Í þessum rétti er eingöngu besti bitinn úr lundinni notaður, endarnir eru skornir frá og notaðir í annan rétt eftir smekk hvers og eins. Lundin er brúnuð í smjöri á heitri pönnu, krydduð og síðan sett til hliðar.

Skerið sveppina og laukinn smátt. Steikið í smjöri og hrærið á meðan steikingin fer fram. Bætið steinselju og brauðraspi saman við. Bragðbætið með salti og pipar.

Leggið smjördeigið á borð og fletjið það út.

Plöturnar eiga að límast saman með léttþeyttu eggi. Leggið sveppablönduna langsum á miðju deigsins. Lundin er síðan sett ofan á og restin af sveppunum ofan á hana.

Pakkið kjötinu inn í smjördeigið, leggið á smjörpappír á bökunarplötu og látið "sauminn" snúa niður. Notið afskurð af deiginu til að búa til skraut ofan á.

Penslið allt með léttþeyttu egginu og geymið á köldum stað þar til kjötið fer í ofninn. Þetta má gera degi fyrir notkun. Setjið kjötið í 200°C heitan ofn í 20 mínútur. Kjötið á að elda þar til kjöthitamælirinn sýnir 57°C.

Meðlætið:

Skerið eða brjótið harða partinn af sperglinum. Þegar spergillinn er beygður kemur í ljós hvar er best að brjóta hann í sundur. Hann er síðan soðinn í sjóðandi vatni í eina til tvær mínútur.

Einnig er gott að hafa fyllta tómata með. Þeir eru settir í sjóðandi vatn í örstutta stund og síðan afhýddir. Laukurinn er saxaður og settur á heita pönnu með smjöri ásamt kínakáli og spínati. Bragðbætt með salti og pipar.

Skerið toppinn af tómötunum og takið aldinkjötið úr. Fyllið síðan með spínatblöndunni. Gott er að setja smá sítrónusafa yfir. Setjið í ofninn og bakið við 200°C í um það bil fimm mínútur.

Með kjötinu er gott að hafa madeira-sósu.

Madeira-sósa

3 msk. mjög fínt saxaður skalottlaukur

30 g smjör

250 g sveppir

½ tsk. möluð piparkorn

1 lárviðarlauf

Ferskt timían

¼ bolli rauðvín

¾ bolli madeira-vín

1 bolli gott kjötsoð

Rjómi eftir smekk

Bræðið smjör á pönnu og steikið laukinn, bætið síðan sveppunum út á og látið steikjast þar til þeir mýkjast og hafa tekið fallegan lit. Takið þá sveppina til hliðar en bætið á pönnuna pipar, timíani og lárviðarlaufi. Þá fer rauðvín og madeira út á pönnuna og loks kjötsoðið. Látið suðuna koma upp og setjið sveppina út í aftur. Að lokum er rjóminn settur saman við og allt hrært vel saman og hitað. Berið fram með kjötinu.






×