Viðskipti innlent

Gróði af verklokum réttlætti áhættu

Mynd/Anton Brink
Ríkisendurskoðun réð ekki annað í upplýsingar og forsendur byggingar Hörpu, í mars 2009, en að rekstur hússins ætti að standa vel undir öllum kostnaði við byggingu þess og rekstri. Þetta kemur fram í minnisblaði stofnunarinnar til fjárlaganefndar Alþingis, sem Fréttablaðið hefur undir höndum.

Í minnisblaðinu segir að þáverandi útreikningar bendi til þess að „rekstur hússins geti staðið undir sér og nægi til þess að greiða til baka lán og viðhalda verðmæti hússins þrátt fyrir að aðeins sé gert ráð fyrir innan við helmingi annarra leigutekna." Er þar vísað til tekna af annarri starfsemi en Sinfóníuhljómsveit Íslands. Forsendur þessa voru þó þær að áætlanir um byggingarkostnað gengju eftir og vaxtastig einnig.

Ríkisendurskoðun taldi rekstraráætlanirnar varfærnar og gefa til kynna að jafnvel væri hægt að standa undir meiri kostnaði en reiknað væri með.

Líkt og fram hefur komið stóðst lítið af áætlunum varðandi Hörpu og gert er ráð fyrir að tap á árinu 2012 verði 407 milljónir króna.

Ríkisendurskoðun taldi ávinning af því að ljúka byggingu Hörpu.

„Ávinningur af því að geta lokið verkinu og tekið húsið í notkun hlýtur að réttlæta eitthvað meiri áhættu en áður." - kóp





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×