Lífið

Anthony kominn með nýja

Ástin er eins og sinueldur hjá Marc Anthony því hann er kominn með nýja upp á arminn, fyrirsætu frá Venesúela.
Ástin er eins og sinueldur hjá Marc Anthony því hann er kominn með nýja upp á arminn, fyrirsætu frá Venesúela.
Jennifer Lopez skartaði nýjum kærasta um jólin og leyfði paparözzum að mynda sig í bak og fyrir með honum. Marc Anthony, sem frú Lopez skildi við á síðasta ári, var ekki lengi að svara fyrir sig og birti mynd af sér og nýrri kærustu, fyrirsætunni Shannon De Lima, á Facebook-síðu sinni. De Lima, sem er frá Venesúela, á fjögurra ára gamlan son af fyrra sambandi og er ákaflega fræg í heimalandi sínu. Anthony sér varla sólina fyrir nýju ástinni í lífi sínu og kallar hana meðal annars Frelsisstyttuna sína á Twitter. Sonur Anthony af fyrra sambandi föður síns og Debbie Rosado notaði einnig Twitter til að óska pabba sínum til hamingju með sambandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×