Innlent

Sóló á Suðurpólinn

BBI skrifar
Mynd/lifsspor.is
Með jákvæðni, áræðni og hugrekki að vopni gengur nú íslensk ævintýrakona í átt að syðsta punkti jarðarinnar. Gönguleiðin er 1100 kílómetrar, hækkun er 2800 metrar og vistir vega í upphafi 100 kíló.

Vilborg Arna Gissurardóttir lagði af stað gangandi frá ysta hluta íshellunnar þann 20. nóvember eftir langan undirbúning. Hún hefur nú gengið í níu daga og lagt 112 kílómetra að baki.

Vilborg býst við því að hún muni ganga 50 daga samtals, en til þess þarf hún að fara 22 kílómetra leið á degi hverjum. Hún gerði þó alltaf ráð fyrir að fara styttri vegalengdir í byrjun, enda er hún hlaðin vistum í byrjun ferðar sem smám saman léttast eftir því sem líður á.

Vilborg segir frá ferðum sínum á hverjum degi á heimasíðunni Lífsspor í gegnum gervihnattarsíma. Á leið sinni hefur hún mátt takast á við ýmiss konar vandamál, eins og sést ekki síst á nýjustu færslu hennar frá deginum í gær. „Gleði dagsins var að ná ipodunum aftur í gang en þeir afneituðu sólarrafhlöðunni um stund. Óskalög skíðamanna komast því aftur á dagskrá í kvöld," skrifaði hún á síðuna sína.

Vilborg er mikil útivistarkona og segir sína helstu ástríðu í lífinu vera útivist, ævintýri og náttúru. Hver einasti dagur í leiðangrinum er stórfellt erfiði. Áætluð brennsla á dag er um 6000 hitaeiningar, en meðalbrennsla er gjarna sögð vera á milli 2500 til 3000 hitaeiningar. Því þarf maturinn að vera orkuríkur og því er þurrmatur, fita og harðfiskur áberandi á matseðli Vilborgar.

Spor Vilborgar á leið sinni verða ófá en mögulegt er að heita á spor hennar. Með því móti leggur maður styrktarfélaginu Líf lið, en það hefur þann tilgang að styrkja kvennadeild Landspítalans. Leiðangurinn er farinn með stuðningi fjölmargra fyrirtækja sem talin eru upp á síðu Vilborgar.

Gönguleið Vilborgar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×