Lífið

Barnshafandi Kate Middleton

mynd/star
Forsíða Star tímaritsins segir að Kate Middleton eigi von á tvíburum. Á forsíðunni er birt mynd af hertogaynjunni með bros á vör sem tekin var af henni í opinberri heimsókn í Singapore á dögunum þar sem hún fangaði athyglina vægast sagt en með henni var eiginmaður hennar Vilhjálmur Bretaprins.

Breskir fjölmiðlar velta sér nú upp úr forsíðumyndinni af Kate en þegar upprunalega myndin af Kate er borin saman við forsíðumyndina má sjá að búið er að eiga töluvert við myndina þannig að Kate virðist vera með stærri maga en hún er í raunveruleikanum en það er önnur saga.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×