Innlent

Jóhanna hættir: "Tilhugsunin er góð“

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sem hefur helgað sig stjórnmálum helming ævi sinnar, ætlar að hætta í stjórnmálum að loknu þessu kjörtímabili. Þorbjörn Þórðarson ræddi við Jóhönnu á sjötta tímanum í dag.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur setið á Alþingi frá árinu 1978. Að loknu þessu kjörtímabili hefur hún því verið þingmaður í 35 ár.

Eitt af mestu afrekum Jóhönnu í stjórnmálum er að hafa orðið forsætisráðherra fyrstu hreinu félagshyggju- og jafnaðarmannastjórnarinnar á lýðveldistímanum eftir kosningar vorið 2009.

Jóhanna segir bréfi sem hún sendi flokksmönnum í dag að allt hafi sinn tíma, líka hennar tími sem sé orðinn langur og viðburðarríkur. Að loknu þessu kjörtímabili hafi hún því ákveðið að láta af þáttöku í stjórnmálum.

Þegar Jóhanna er spurð út í fræg ummæli sín um að hennar tími mun koma, og hvort hann sé nú liðinn, svarar Jóhanna: „Allt hefur sinn tíma, líka minn tími í pólitík og minn tími hefir verið langur."

Jóhanna segist hafa ætlað að hætta að loknu kjörtímabilinu sem hófst 2007. Síðan hafi örlögin gripið í taumana en það voru eindregin tilmæli flokksmanna og þáverandi forystu Samfylkingarinnar að hún leiddi flokkinn í kosningum 2009. Að loknum kosningum varð Samfylkingin stærsti stjórnmálaflokkur landsins, mælt í fjölda þingmanna, en flokkurinn fékk flesta þingmenn kjörna þá um vorið.

Spurð hvað það sé sem hún sé stoltust af á ferli sínum, svarar Jóhanna því til að það sé árangur ríkisstjórnarinnar eftir hrunið.

Jóhanna, sem klárar þetta kjörtímabil, ætlar að einbeita sér að því næstu sjö mánuði að klára stór mál eins og breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, rammaáætlun um orkunýtingu og stjórnarskrármálið.

En finnst henni óþægilegt að hætta eftir svo langan tíma í stjórnmálum? Jóhanna segist hafa íhugað það vel og lengi. „En ég verð að segja að tilhugsunin er góð," segir hún.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×